Mál nr. E-7206/2009:
Stefnandi: Lýsing hf. (Sigurmar Kristján Albertsson hrl.)
Stefndu: Jóhann Rafn Heiðarsson (Ólafur Rúnar Ólafsson hdl.)
Trausti Snær Friðriksson
Dómari: Áslaug Björgvinsdóttir, settur héraðsdómari
Óhætt er að segja að niðurstaða máls nr. E-7206/200 markar tímamót í réttarbaráttu lántakenda. Kannski má segja að staðan sé 1 - 1 en í ljósi vel ígrundaðs rökstuðnings Áslaugar Björgvinsdóttur má auðveldlega halda fram að lántakendur hafi í myndmáli "skorað lang flottasta markið". Við hvetjum alla sem hafa áhuga á niðurstöðum þessara mála að lesa dóminn vandlega.
Í samanburði kemur röksemdarfærsla og niðurstaða fyrri dóms í máli SP fjármögnunar gegn Óskari Sindra yfir sem annarleg. Á þessum tveimur málum sést glögglega munurinn á dómum þar sem annar dómarinn vinnur heimavinnuna og skoðar málið í kjölinn og tekur afstöðu út frá lögunum og rökfærslum málfærslumannanna. Í hinu tilfellinu er ákveðið fyrirfram hver niðurstaðan á að vera og lögin síðan túlkuð langt út fyrir orðanna hljóðan öðrum aðilanum í hag.






