Vésteinn Gauti Hauksson var í símaviðtali á Bylgjunni í morgun en þar kom ýmislegt fróðlegt fram varðandi fyrirvara sem neytendur eru að gera á breytingar á lánum. Hlusta má á viðtalið á vef Bylgjunnar hér.
Þess má geta að Björn Þorri Viktorsson hrl. hefur sagt fólki að vilji lánastofnun ekki taka við fyrirvara á lánapappírana sjálfa má senda fyrirvarann inn einhliða með tölvupósti eftir að heim er komið (ath. að senda á fleiri en eitt netfang hjá lánastofnuninni). Hagsmunasamtök heimilanna hafa stofnað sérstakt netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. þar sem fólk getur sent afrit af slíkum póstum (sett í CC reit tölvupóstsins). Fyrirvarinn má t.d. vera: "Með fyrirvara um betri rétt neytanda". Komi upp deilur um fyrirvarann seinna meir má senda beiðni til Hagsmunasamtaka heimilanna um að fá afrit af póstinum.






