
HLEMMUR TIL AUSTURVALLAR
6. MARS. KL. 14:00
Gerum næsta laugardag að sögulegum degi. Fjölmennum við formlega stofnun Alþingis götunnar. Grasrótarsamtök sem hafa sameiginlega ást á lýðræðislegum gildum og valdi fólksins yfir eigin lífi, þ.á.m. HH, hafa tekið sig saman um að standa fyrir göngu niður Laugaveginn frá Hlemmi kl. 14.
Gangan endar á Austurvelli þar sem Alþingi götunnar verður formlega til. Erlendir fjölmiðar senda fjölda fréttamanna til landsins til að fylgjast með þjóðaratkvæða-greiðslunni. Gefum þeim myndefni, gefum þeim eitthvað sýnilegt til að fjalla um. Gefum lýðræðishugsjónum byr undir báða vængi. Gefum skýr skilaboð til umheimsins, lýðræðið er númer eitt, valdið er fólksins.
Gerum Alþingi götunnar að stórviðburði. Ekki láta þig vanta. Tölum einum rómi með samtökunum okkar. Látum það ekki fara neitt á milli mála hver vilji okkar er. Kjósum með fótunum í göngunni niður Laugaveg.
Við hvetjum fólk til að koma með skilti. Segðu það sem þér finnst skipta máli. Látum svo kröfur HH hljóma hátt og snjallt.
Hagsmunasamtök heimilanna
Nokkrar hugmyndir að slagorðum á skilti:
BLESS BLESS VERÐTRYGGING
LYKLAFRUMVARP JÁ TAKK
HEIMILIN ERU EKKI BOTTNLAUS SJÁLFTÖKUSJÓÐUR FJÁRMÁLAKERFIS OG STJÓRNVALDA
HEIMILIN ERU GRUNNSTOÐ SAMFÉLAGSINS
HAGSMUNIR HEIMILANNA = HORNSTEINN SAMFÉLAGSINS
HINGAÐ OG EKKI LENGRA
Hagsmunasamtök Heimilanna - Talsmenn heimilanna í landinu.
HAGSMUNIR HEIMILANNA Í FORGANG
STERK HEIMILI = STERKT SAMFÉLAG
BANKANUM ÞÍNUM ER SAMA UM ÞIG
VERÐTRYGGING = HÆGUR DAUÐI
STYRKUR HEIMILA = STYRKUR SAMFÉLAGS
LEIÐRÉTTING LÁNA STRAX
ÚT MEÐ VAXTAOKUR
VEÐANDLAG ER NÓG
GLÆPAMENNINA Í TUGTHÚSIÐ TAKK
BURT MEÐ VERÐTRYGGINGU
BLESS BLESS GENGISTRYGGING - XXX, Áslaug
LÝÐRÆÐI HÉR OG NÚ
HEIMAVARNARLIÐIÐ ROKKAR FEITT
FRIÐHELGI HEIMILANNA
LEIÐRÉTTING LÁNA TAKK
SJÁLFTÖKUBANKAR DEYJIÐ TAKK
VERÐTRYGGING = BOTNLAUS HÍT
NIÐUR MEÐ SJÁLFTÖKUBANKA




















