Morgunverðarfundur um verðtryggingu

  • Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna vilja vekja athygli á morgunverðarfundi um verðtryggingu sem haldinn verður miðvikudaginn 18. maí kl. 8:30-10:00 í Háskólanum í Reykjavík, stofu M1.01-Bellatrix.

Eygló Harðardóttir, Alþingismaður og formaður nefndar um verðtryggingu, mun kynna stuttlega niðurstöður nefndarinnar.

 

 

Þá munu eftirtaldir halda framsögu:

  • Marínó G. Njálsson, framkvæmdastjóri Betri ákvarðana.
  • Vilhjálmur Þorsteinsson, fjárfestir og fulltrúi Samfylkingar í nefnd um verðtryggingu.
  • Pétur H. Blöndal, Alþingismaður og fulltrúi Sjálfstæðisflokks í nefnd um verðtryggingu.

Að framsögum loknum verða pallborðsumræður.

Friðrik Már Baldursson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík stýrir fundi.

Skýrslu nefndar um verðtryggingu má nálgast hér:
http://www.efnahagsraduneyti.is/verkefni/nefndir/Allar_nefndir/nr/3169