Ályktanir og tillögur flokkanna

  • Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna fagna því að flokkar og framboð fyrir komandi kosningar hafa tekið undir með samtökunum að leiðrétta þurfi höfuðstól húsnæðislána eins og sjá má í ályktunum landsfunda og/eða tillögum leiðtoga flokkanna. Þó gagnrýnisraddir á þessa aðferð hafa verið hávær í fjölmiðlum að þá hafa þær klárlega orðið undir á landsfundum flokkanna og Hagsmunasamtök heimilanna munu halda flokkunum við stóru orðin.

Hagsmunasamtök heimilanna hafa ennfremur gert samantekt á því helsta sem flokkarnir hafa upp á að bjóða í þessum málaflokki nú í aðdraganda kosninga.  Eftirfarandi er samantekt Héðins Björnssonar fyrir HH á því sem flokkarnir hafa fram að færa:

Úr efnahagstillögum Framsóknarflokksins:
„20% niðurfelling skulda (með hugsanlegu hámarki á heildarupphæð)“ sjá skýringamynd frá Framsókn hér

Úr stjórnmálaályktun Sjálfstæðisflokksins:
„Hugað verði að höfuðstólslækkun lána til að mæta þeim forsendubresti sem orðið hefur í hagkerfinu.“

Úr frumvarpi til laga framsettu af Guðjóni A. Kristjánssyni og Grétari Mar Jónssyni:
„Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo: Þrátt fyrir ákvæði 14. gr. um að skuldbindingar séu verðtryggðar á grundvelli vísitölu neysluverðs skal engu að síður á tímabilinu frá 1. janúar 2009 til 1. janúar 2010 miða við 5% hámarkshlutfall. Verðtryggingarálag umfram 5% skal lagt inn á biðreikning.“

Úr efnahagsstefnu Borgarahreyfingarinnar:
„Alvarleg staða heimilanna verði tafarlaust lagfærð með því að færa vísitölu verðtryggingar handvirkt fram fyrir hrun hagkerfisins (janúar 2008) og hækkanir höfuðstóls og afborganir húsnæðislána til samræmis við það... Skuldabyrði heimila vegna gengistryggðra íbúðalána verði lagfærð í samræmi við lagfæringu verðtryggðra íbúðalána.“

Úr efnahagsályktun landsfundar Samfylkingarinnar:
„Leitað verði sanngjarnra leiða til að skipta ófyrirséðu tjóni milli lántakenda og lánveitenda vegna efnahagshrunsins og hækkunar verðtryggðra lána því samfara.“

Úr efnahagsályktun landsfundar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs:
„Fundurinn skorar á ríkisstjórnina að leita leiða til að lækka höfuðstól húsnæðislána eða frysta hluta hækkunar höfuðstóls lána vegna verðbólguskotsins.“