HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða

Fundir á Austurvelli

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Undirritaður mætti á Austurvöll og fékk með sér 4 félaga til að mæta. Við erum sammála því að nauðsynlegt sé að mæta á þessa fundi og að sorglegt finnst að sjá hversu fáir mæta þrátt fyrir þann mikla fjölda sem er lentur í hremmingum eftir glæpastarfsemi orfárra bankamanna, viðskiptamanna, embættismanna og stjórnmálamanna. Við fórum á kaffihús eftir fundinn og veltum fyrir okkur hvers vegna mætingin væri svona dræm. Við teljum að færa ætti fundina yfir á sunnudaga, þá eiga fleiri frí og hafi frekar möguleika á að mæta. Ég hefi t.d. heyrt suma segja að þeir geti ekki komið vegna fótboltaleiks í sjónvarpinu. Annað sem við teljum að ætti að gera er að stytta fundina, þ.a. þeir verði hámark 30 mínútur. Ræður fara oft fyrir ofan garð og neðan, því í sumum heyrist nánast ekkert útá völlinn. Í lok fundarins voru menn farnir að tínast í burtu og fundurinn farinn að leysast upp, enda fólki orðið kalt að standa hreyfingalaust. Fundirnir ættu að vera meira í slagorðastíl og aðalatriðið er að fá sem flesta til að mæta, það er fjöldinn sem veitir slagkraft, reynslan sýnir að stjórnmálamenn hlusta ekki á upphrópanir örfárra manna. Við þurfum meiri fjölda. Magnús
 
Umsagnir (2)
2 Mánudagur, 08 Febrúar 2010 08:33
Sigríður Helgadóttir
Ég er sammmála því að það sé nauðsynlegt að mæta á þessa fundi og eins því að færa þá yfir á sunnudaga og stytta fundina. Fólk er alltaf meira upptekið á laugardögum í vinnu eða einfaldlega að reyna að gera eitthvað með fjölskydunni. Ég og minn maður höfum farið á þessa fundi og munum eiga auðveldara að mæta ef þeir eru á sunnudögum. Svo er einfaldlega að hvetja alla til þess að mæta því þetta snertir alla og líka þá ættingja og vini sem eiga í þessum erfiðleikum. Nú er tími (og ekki hugsa að þessi eða hinn muni bara mæta fyrir mig) til þess að allir standi saman og þá munum við sjá árangur!
1 Sunnudagur, 07 Febrúar 2010 13:59
Elísabet Hjaltested
Ég hef mætt á Austurvöll á allmarga fundi ég er hissa á því hversu fáir koma.
Ég er að missa heimilið mitt og hin fyrirvinnan komin erlendis að vinna. Ég get ekkert gert annað en þetta að mæta.
Frábært framtakhjá þeim sem standa að þessum fundum.

Gefðu þína umsögn

Þitt nafn:
Þitt nefang:
Efnislýsing:
Umsögn (nota má HTML tög hér):