Skólamatur handa börnum

  • Skoða sem PDF skjal
Hagsmunasamtökum heimilanna hefur borist áskorun til íslenskra stjórnvalda um skólamat handa öllum skólabörnum á íslandi.  Án þess að vilja hvetja til niðurskurðar á öðrum sviðum sérstaklega sjá samtökin sig knúin til að vekja athygli á málinu og taka undir eftirfarandi Áskorun til íslenskra stjórnvalda:
"Það er forkastanlegt að margir íslenskir foreldrar þurfi að skrá börnin sín úr mötuneytum í íslenskum grunnskólum þar sem efnahagur flestra íslenskra heimila hefur hrunið.  Ekki má gleyma þeim unglingum, nemum sem stunda framhaldsnám í íslenskum framhaldsskólum. Engin haldbær né útreiknanleg rök eru færð fyrir því af hendi stjórnvalda af hverju það sé of dýrt að gefa íslenskum börnum að borða í íslenskum skólum. Börnin, fjölskyldur þeirra og heimili þeirra eru hornsteinar íslensks samfélags.  Stjórnvöldum ber því skylda til að virða Mannréttindarsáttmálann ekki síst nú er félagshyggjustjórn er í ríkisstjórn."

29. mars 2009
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna