Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kann að hafa gefið sterkt fordæmi fyrir aðlögun samninga vegna forsendubrests með dómi sínum 23. júlí 2010. Dómurinn er reyndar nokkuð óvenjulegur því forsendurbrestur lánsins er vegna lögbrota þess aðila sem sækir málið og honum er einhvernvegin snúið til að dæma brotaaðilanum í hag. Svo virðist sem héraðsdómarinn líti á dóm hæstaréttar sem forsendubrest fremur en lögbrotið að baki þeim dómi. Hvað sem því líður er kötturinn úr sekknum. Komið er fordæmi fyrir notkun forsendubrests til breytingar á ákvæðum lánasamninga AFTURVIRKT. Þetta er því TÆR SNILLD! Lántakar verðtryggðra lána verða ævinlega þakklátir Arnfríði fyrir þessa aðstoð í baráttunni fyrir leiðréttingu verðtryggðra lána.
Með þessari grein var áður mynd af manneskju sem er óviðkomandi þessu máli. Myndin hefur verið fjarlægð og eru viðkomandi beðin afsökunar á þessum mistökum.






