ESA kvörtun - söfnum félagsmönnum

  • Skoða sem PDF skjal

Stjórn HH hvetur félagsmenn til að hjálpa við að kynna málstað samtakanna og safna fleiri félagsmönnum. Á næstunni getur aukinn stuðningur við samtökin haft mikil áhrif á þann málarekstur sem samtökin hafa tekið sér fyrir hendur ásamt Samtökum Lánþega og fjölda einstaklinga þ.á.m. Margréti Tryggvadóttur Alþingismanni og Birni Þorra Viktorssyni hdl. Hópurinn naut ráðgjafar sérfræðinga í evrópurétti.

Ofangreindir aðilar hafa nú sett saman kvörtun til ESA vegna alvarlegra brota íslensku stjórnsýslunnar á neytendaréttartilskipun Evrópusambandsins á Evrópska efnahagssvæðinu. Íslensk stjórnvöld hafa reyndar innleit tilskipun ESB í lög en þverbrjóta þau auk stjórnarskrár með íþyngjandi og afturvirkri lagasetningu nr. 151/2010 um vexti og verðtryggingu.

Hæstiréttur kann einnig að hafa brotið gegn evrópskum neytendarétti með dómi um íþyngjandi vaxtaálög á neytendur í kjölfar ógildingar á ákvæðum um gengisbindingu lána. ESA mun einnig rannsaka hvort verðtryggingin brjóti í bága við evrópskan neytendarétt svo ekki sé minnst á mannréttindi. Samkvæmt samningnum um EES njóta íslenskir neytendur verndar EFTA og ESB en á Íslandi búa einnig ríkisborgarar ESB ríkja og þeir krefjast einnig réttar síns gagnvart íslenskum lánastofnunum og íslenskri stjórnsýslu.

Fjölgun félagsmanna um þessar mundir mun sýna ESA og EFTA auk íslenskra stjórnvalda og lánastofnana að umkvörtun okkar á sér víðtækann stuðning meðal almennings.

Upplýsingar: The EFTA Surveillance Authority monitors compliance with European Economic Area rules in Iceland, Liechtenstein and Norway, enabling them to participate in the European internal market

Skráning í samtökin