Enn og aftur hittir ÓA naglann á höfuðið með greinum sínum í Pressunni. ÓA hefur hlífir engum sem vinnur gegn hagsmunum almennings, hvorki "samherjum" né "mótherjum". Fleiri mættu taka sér ÓA til fyrirmyndar og hugsa og tala sjálfstætt.
"Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, lýsir því yfir í Fréttablaðinu í dag að hann sé hlynntur því að fella niður skuldir, sem eru umfram greiðslugetu og veðrými. Haft er eftir Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, í sömu frétt að hann vari við almennum afskriftum lána.
Hjá báðum ráðherrum kemur fram mikil umhyggja fyrir bókhaldi ríkissjóðs en minni fyrir hagsmunum almennings. Þó að yfirlýsing félagsmálaráðherra sé vissulega spor í rétta átt veldur það áhyggjum að þessir tveir lykilráðherrar ríkisstjórnarinnar virðast einfaldlega ekki gera sér grein fyrir þeim vanda, sem við Íslendingar stöndum frammi fyrir."
Lesa alla greinina á Pressunni...






















Ufff - held að Árni Páll viti ekki hvort hann sé að koma eða fara.
Treysti honum ekki - því miður.
Það hefur orðið eignaupptaka hjá öllum sem eru með verðtryggð eða gengistryggð lán. Þetta þarf að leiðrétta.
Lán voru tekin útfrá ákveðinni forsendu. Ég tók lán eftir kjarasamningana 2008 í febrúar - þar gerði aðildarfélög ASÍ kjarasamninga og þar var verðbólguspá lág. En það hefur ekki gengið eftir. Lánið mitt sem ég tók í maí 2008 uppá 20 milljónir hækkaði um 682.000 kr. bara í maí. Þetta er ekki okur þetta er rán!!!
Þetta er að drepa margar fjölskyldur - því miður. Það verður eitthvað að gera.
Ríkisstjórnarflokkarnir lofuðu skjaldborg um heimilin ef þeir kæmust að en ekkert hefur gerst - frysting lána er eins og að pissa í skóna sína - skammtímavermir.
'Eg hreinlega auglýsi eftir skjaldborginni sem okkur kjósedum var lofað!