Stjórn HH vill vekja athygli á þremur nýjum skjölum varðandi starf HH.
Athugasemdir HH við stöðumat SÍ á skuldastöðu heimilanna
Niðurstöður viðhorfskönnunar meðal félagsmanna í júní
Könnun sem framkvæmd var meðal félagsmanna í samtökunum í byrjun júní sýnir að afgerandi meirihluti félagsmanna er ekki að ná endum saman. Meirihluti, eða 61% félagsmanna er ekki að ná endum saman með tekjum sínum, er annað hvort að gjaldþrota eða á leið þangað, safnar skuldum eða að ganga á sparifé sitt. Jafnframt kemur fram að hlutfallslega fleiri, eða 85% þeirra sem eru með gengistryggð lán eru ekki að ná endum saman. Ætla má að þessi staða endurspegli þokkalega stöðuna í samfélaginu (sjá nánar meðfylgjandi).
Alls 44% félagsmanna telja frekar eða mjög litlar líkur á því að þeir geti staðið við skuldbindingar sínar næstu sex mánuði. Svarendur með erlend lán og blönduð lán telja síður líkur á því að þeir geti geti staðið við skuldbindingar sínar, eða alls 51% þeirra sem eru eingöngu með erlend lán og 52% þeirra sem eru með blönduð lán telja að þeir geti ekki staðið við skuldbindingar sínar á næstu sex mánuðum.Í opnum spurningum kemur fram að fólk er farið að neita sér um ýmsar nauðsynjar og er þar helst nefnt tannlækningar, en einnig tómstundir og afþreying af ýmsum toga fyrir hvoru tveggja börnin sem fullorðna í heimili. Einnig eru margir sem nefna lyf og læknaþjónustu, ferðalög, bensín, gjafir, fatnað, skó, gleraugu og viðhald húsnæðis svo eitthvað sé nefnt.







