Niðurstöður rafrænnar skoðanakönnunar Hagsmunasamtaka heimilanna varðandi svör stjórnmálaflokka við spurningum HH í Fréttablaðinu 6. apríl sl. Svörin voru birt í Fréttablaðinu 20. apríl en þau eru einnig aðgengileg hér.

Boðaðir til þátttöku eru að meirihluta félagsmenn HH (1400) auk einstaklinga á póstlistum HH (alls 2246, þar af svöruðu 332).
Þátttakendur gáfu aðgerðaáætlunum flokkanna fyrir heimilin einkunnir frá 1 til 10. Atkvæðin eru svo þeir flokkar sem viðkomandi segjast ætla að kjósa. Þátttakendur gáfu ekki alltaf upp kyn og því kunna niðurstöðurnar að virðast í ósamræmi í sumum tilfellum (atkvæðin í “skila auðu” t.d.).


Þátttökuhlutfallið er rétt um 15% af þeim sem fengu boð um þátttöku en lágt hlutfall skýrist af stuttum opnunartíma könnunarinnar (54 klst). Almennt þurfa rafrænar kannanir viku eða meira til að fá ríflegra þátttökuhlutfall.
Skoðanakönnunin var unnin í Könnuði, rafrænu kannanakerfi HRM rannsóknir og ráðgjöf ehf.







