HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Um samtökin Skjöl úr starfi HH Kannanir og rannsóknir
Kannanir og rannsóknir

Nauðungarsölur á Íslandi

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Sveinn Óskar SigurðssonVerðmyndun í nauðungarsölu - söguleg þróun og réttarbót áhætta og óvissa heimila á Íslandi.

Eftir Svein Óskar Sigurðsson, meistaranema við Háskóla Íslands.

"Þessa skýrslu tileinka ég hálfbróður mínum heitnum, Róberti Friðþjófi Sigurðssyni, sem lést 19. nóvember 2009. Þar fór réttsýnn og góður maður sem lét sig hagsmuni og sögu íslensku þjóðarinnar varða. Lagði hann ávallt áherslu á að læra yrði af reynslunni og sagan kenndi okkur að réttlæti væri ekki auðsótt heldur torsótt. Sagði hann mér eitt sinn að almenningur í hverju landi hefði oftast náð árangri og aukið mannréttindi. Þar getur lítil þjóð barist við stórveldi, þar getur hinn minni sigrað hinn stærri með réttlæti og sanngirni að vopni. Frændur Róberts í Finnlandi börðust við Rússa og höfðu sigur. Það, sem svo margt annað, kennir að það þarf að sækja rétt sinn því hann verður ekki á borð borinn, hvorki fyrir íslensku þjóðina né íslensk heimili."

"Rannsókn þessi gekk út á þá spurningu hvort núgildandi nauðungarsölulög væru að virka eins og löggjafanum gekk til með lagasetningunni á sínum tíma. Svarið er einfalt. Nauðungarsölulögin eru ekki að virka með þeim hætti sem lagt var upp með af hálfu löggjafans. Þessar eru ástæðurnar helstar:" Smellið hér til að skoða skýrsluna í heild sinni.

 

Könnun í ágúst 2009 unnin af Capacent Gallup fyrir HH

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna létu Capacent Gallup vinna könnun fyrir samtökin í ágúst 2009. Hér eru niðurstöður könnuninarinnar.

 

Svör HH vegna endurmats á greiðsluaðlögun

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Til: Nefndar á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytis sem hefur það hlutverk að endurmeta löggjöf og koma með tillögur um hvernig styrkja megi stöðu skuldara.

B.t. Ránar Ingvarsdóttur
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík

Efni: Hér er fyrir hönd Hagsmunasamtaka heimilanna leitast við að svara spurningum nefndar þeirrar sem hefur það hlutverk að endurmeta löggjöf og koma með tillögur um hvernig styrkja megi stöðu skuldara m.t.t. mats á árangri nýrra lagaákvæða um greiðsluaðlögun.

Lesa meira...
 

Samantekt v. greiðsluaðlögunar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Samantekt úr rýnihópi v. greiðsluaðlögunar þann 2. september 2009

Hér er fyrir hönd Hagsmunasamtaka heimilanna leitast við að svara spurningum nefndar þeirrar sem hefur það hlutverk að endurmeta löggjöf og koma með tillögur um hvernig styrkja megi stöðu skuldara m.t.t. mats á árangri nýrra lagaákvæða um greiðsluaðlögun.

  1. Biðtími var styttri en þátttakendur áttu von á hjá Ráðgjafarstofu heimilanna (RSH) og engar kvartanir sem komu fram í þeim efnum. Umkvörtunarefnið var einna helst að fólk  var nánast komið í gegnum ferlið þegar það áttaði á hvað í því fælist og/eða hvaða afleiðingar það hefði.
  2. Skortir upplýsingar frá RSH um hvaða afleiðingar greiðsluaðlögunin hefur s.s.  að viðkomandi lendi á vanskilaskrá. Fyrir mörgum jafngildir það því að verða gjaldþrota, og verða því einstaklingar meðhöndlaðir sem gjaldþrota af samfélaginu.
  3. Ráðgjöfinni hjá RSH er ábótavant. Upplýsingar, leiðsögn og annað sem ráðgjafarstofan veitir virðist takmörkuð og fyrst og fremst felast í því að afhenda bæklinga og eyðublöð til útfyllingar frekar en að útskýra hvað felist í úrræðinu og/eða útskýringum á því hvaða afleiðingar það hefur fyrir einstaklinginn eða fjölskylduna bæði til skamms tíma og lengri tíma litið.
Lesa meira...
 

Niðurstöður í viðhorfskönnun, skuldastaða heimilanna og velferðarvaktin

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Stjórn HH vill vekja athygli á þremur nýjum skjölum varðandi starf HH.

Athugasemdir HH við stöðumat SÍ á skuldastöðu heimilanna

Tillögur HH í velferðarvakt

Niðurstöður viðhorfskönnunar meðal félagsmanna í júní

Könnun sem framkvæmd var meðal félagsmanna í samtökunum í byrjun júní sýnir að afgerandi meirihluti félagsmanna er ekki að ná endum saman. Meirihluti, eða 61% félagsmanna er ekki að ná endum saman með tekjum sínum, er annað hvort að gjaldþrota eða á leið þangað, safnar skuldum eða að ganga á sparifé sitt.  Jafnframt kemur fram að hlutfallslega fleiri, eða 85% þeirra sem eru með gengistryggð lán eru ekki að ná endum saman.  Ætla má að þessi staða endurspegli þokkalega stöðuna í samfélaginu (sjá nánar meðfylgjandi).

Lesa meira...
 

Niðurstaða atkvæðagreiðslu félagsmanna um greiðsluverkfall

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Niðurstaða atkvæðagreiðslu um að veita stjórn HH umboð til að hefja aðgerðir, þ.e.a.s. greiðsluverkfall, er að félagsmenn hafa samþykkt með 77% greiddra atkvæða (692 af 893 greiddum atkvæðum).

Fjöldi viðtakenda: 2221
Fjöldi þátttakenda: 893 (40%)
Greiðsluverkfall JÁ: 692 (77%)
Greiðsluverkfall NEI: 74 (8%)
Hlutlausir: 123 (14%)
Auðir: 4 (~1%)

 
Fleiri greinar...


JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL