HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Um samtökin Viðburðir
Viðburðir

N1 styrkir HH

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Vésteinn Gauti Hauksson varaformaður og Marinó G Njálsson ritari stjórnar hafa fyrir hönd Hagsmunasamtaka heimilanna móttekið styrktarframlag N1 að upphæð kr. 2,25 millj. í sjóð samtakanna.  N1 ákvað að endurgreiða ofreiknað eldsneytisgjald síðustu daga til góðgerðarsamtaka.  Aðrir framlagsþegar, að sömu upphæð, voru Mæðrastyrksnefnd, Fjölskylduhjálpin og Umhyggja.  Ekki þarf að fjölyrða um hversu mikið þetta framlag mun styrkja starf samtakanna og byggja sterkari stoðir undir starfsemi þeirra.  Stjórnin þakkar því N1 fyrir rausnarlegt framlag og fyrir að hafa samtökin með í svo virtum hópi góðgerðarsamtaka.

 

Fundur stjórnar HH með AGS (IMF)

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

AGS telur að viðeigandi skuldaaflétting heimila þurfi að koma til innan 12 mánaða. Viðhorf Mark Flanagan til lántakenda gengistryggðra íbúðalána vakti undrun fulltrúa HH.

Fulltrúar stjórnar HH áttu fund með Mark Flanagan og Franek Rozwadowski hjá AGS fimmtudaginn 3. desember sl. Á fundinum var farið yfir stöðu heimilanna og afstaða AGS til stöðu þeirra hér á landi skýrð. Fyrir hönd Hagsmunasamtakanna sátu fundinn Marinó G Njálsson ritari, sem átti frumkvæði að því að kalla eftir fundinum, Arney Einarsdóttir gjaldkeri, Friðrik Ó Friðriksson formaður stjórnar og Ólafur Garðarsson varaformaður.

Lesa meira...
 

Fleira fólk kemur saman á Austurvelli

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Enn einn vel heppnaður kröfufundur á Austurvelli er að baki. Ræðumenn voru Bjarki Steingrímsson, varaformaður VR, Axel Pétur Axelsson, stjórnarmaður Hagsmunasamtaka heimilanna og Einar Már Guðmundsson, rithöfundur. Lúðvík Lúðvíksson var fundarstjóri. Í lokin fluttu Föruneyti rokksins tvö lög (Ugla og Saga). Björn Þorri Viktorsson lögfr. gaf heitt kakó, nokkrir þingmenn komu út að fylgjast með. Fundurinn var haldinn í samvinnu við Nýtt Ísland.

Af gefnu tilefni vill stjórn HH geta þess að skoðanir ræðumanna eru ávallt þeirra eigin. Fundirnir eru vettvangur til að viðra ýmis sjónarmið, fundargestir taka undir eins og þá listir. Fundirnir eru ekki til þess gerðir að einoka með stefnu HH en sjónarmið HH fá alltaf að heyrast og kröfur samtakanna um leiðréttingu stökkbreyttra lána heimilanna eru grunntónninn í fundunum. 

Við hvetjum félagsmenn að koma og láta í sér heyra á hverjum laugardegi. Þessir fundir eru komnir til að vera á laugardögum kl. 15:00 í vetur.

 

Ræða Ólafs Garðarssonar á Austurvelli 28. nóv. 2009

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Þessa ræðu má heyra og sjá lifandi hér.

Hér stöndum við rúmu ári eftir eitt versta bankahrun heimssögunnar. Verið er að innheimta stökkbreytt lán heimilanna eins og ekkert hafi í skorist... business as usual. Jón Gnarr svaraði því aðspurður í hvaða stjörnumerki hann væri, að hann væri í spurningamerkinu. Mér er eins innanbrjósts og spyr. HVAÐ GENGUR Á?

Fjármálakerfið dreymir upp leiðir til að láta heimilin staðfesta sjálftöku þess og beita engu minna en sjálfu ríkisvaldinu fyrir sig. Menn spyrja hver á að borga fyrir leiðréttingu á stökkbreyttum lánum heimilanna? Kröfurnar á bankana voru seldar á hrakvirði og nýju bankarnir eru að kaupa þær með hundruða milljarða afföllum. Samt er ætlast til að heimilin greiði þetta allt með stökkbreyttum viðbótum. Á hvaða forsendum á heimilisfólkið að greiða margfalt það sem þau fengu að láni fyrir hýbýli sín? Hvar eiga heimilin að finna peningana til þess og það sem er kannski mikilvægara. AF HVERJU ÆTTU ÞAU AÐ BORGA?

Lesa meira...
 

Austurvöllur: Vel heppnaður útifundur

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Eitthvað er á reyki hversu margir sóttu útifundinn á Austurvelli. Fimm mínútum fyrir fundinn virtust fáir mættir en nokkrum mínútum síðar streymdi fólk að þ.e. um leið og Andrea J Ólafsdóttir og Guðrún Dadda Ásmundardóttir fundarstjórar tóku til máls. Greinilegt var að fólk beið á kaffihúsunum í kring eftir að heyra eitthvað. Um 15:10 voru allt að eitt þúsund manns á Austurvelli. Myndir sem teknar voru af fundinum benda til að fólk hafi verið að koma og fara þær 30 mínútur sem framsögumenn fluttu erindi sín. Einhver fjölmiðill taldi 200 manns en það hefur líklega verið áður en fundur hófst eða eftir að framsögumenn höfðu lokið máli sínu. Þannig fréttaflutningur er frekar bágborinn satt best að segja og virðist miða að því að gera lítið úr viðburðinum.

Lesa meira...
 


JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL