Akureyri 12. febrúar 2009. Opinn borgarafundur
Heimilin eru grunnstoð samfélagsins. Allt hitt er byggt á heimilunum. Fasteignir heimilanna eru verðmætasta sparifé samfélagsins og standa undir stærstum hluta þeirra veða beint og óbeint sem atvinnuvegirnir byggja á. Heimilin eru griðarstaður einstaklinganna og síðasta vígi.

Nú er komin upp sú staða, enn einu sinni að lánastofnanir sækja á heimilin í krafti einhliða samninga. Kerfið okkar er þannig uppbyggt að heimilin eru varnarlaus gegn ofríki lánastofnana. Maður mundi ætla að lánastofnanir, fyrirtæki og annað í samfélaginu væru byggð til að þjóna hagsmunum þjóðarinnar, hagsmunum heimilanna. En það virðist vera einhver misskilningur.
Ef marka má það sem hefur verið að gerast undanfarin ár eru lánastofnanir byggðar upp fyrir afmarkaðan hluta af þjóðinni. Þúsundum heimila er nú ógnað með eignaupptöku. Hver aðilinn á fætur öðrum rís upp og segist ætla að bjarga heimilunum. En hvað gera þeir? Þeir segjast ekki hafa efni á því þegar á hólminn er komið. Gylfi Magnússon núverandi viðskiptaráðherra sagði að ríkið hefði ekki efni á almennum aðgerðum í þágu heimilanna. Það væri aðeins hægt að hjálpa þeim sem komnir væru í þrot með sértækum aðgerðum. Ég er ansi hræddur um að ríkisvaldið sé að meta stöðuna kolrangt enn einu sinni. Sú stórfellda eignaupptaka og gjaldþrotahrina sem hafin er mun hafa mun verri afleiðingar en að gefa eftir af kröfunum eins og við leggjum til. Við lítum á hækkanir á gjaldeyristryggðum lánum og vísitölulánum síðustu 18 mánuði sem þýfi sem þarf að skila. Hér er verið að nota samninga sem voru miðaðir við stöðugleika í efnahagsstjórn til þess að kúga heimilin til að borga brúsann. Alls kyns aðilar rísa upp á afturlappirnar og verja þetta afleita kerfi. Þeir nefna lífeyrissjóði og alskyns aðrar fráleitar réttlætingar. Við sem eigum lífeyrissjóðina í reynd teljum þá lítils virði í samanburði við stærsta lífeyrissjóðinn okkar, íbúðina, heimilið. Í guðana bænum farið að átta ykkur á stöðunni.Hvað er heimili? Heimilið samanstendur stundum af einum einstakling en oftast nær er um lítinn hóp einstaklinga að ræða, foreldra og börn, hagkvæmnissambúð, samkynhneigða í sambúð og margskonar önnur sambúðarform. HH gera engan greinarmun á milli heimila. Við skulum þó viðurkenna að okkur er mikið í mun að gæta hagsmuna yngstu meðlimanna og þeirra sem geta ekki varið sig fyrir ofríki. Við köllum á alla sem enn standa sterkir að fylkja liði með okkur og verja grunnstoð samfélagsins með okkur. Heimilin eru lykillinn að árangri í að byggja upp nýtt fjármálakerfi og halda atvinnuvegunum gangandi. Það gerist þó ekki með því að lama og leysa upp stóran hluta þeirra. Lánastofnanirnar og stjórnvöld verða að létta þeirri ógn sem vofir yfir heimilunum með fráleitum hækkunum lána.
Heimilin eru ekki að biðja um ölmusu. Heimilin eru ekki að biðja um niðurfellingu allra skulda. Þau vilja bara að ríki og lánastofnanir taki ábyrgð á þeim skaða sem þau hafa valdið. Ekki velta skaðanum yfir á íbúðareigendur eina. Ef það verður gert verður seint friður í þessu landi og margir munu yfirgefa það fyrir fullt og fast.
Ólafur Garðarsson







