HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Um samtökin Viðburðir Alþingi götunnar - Stofnyfirlýsing

Alþingi götunnar - Stofnyfirlýsing

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Mynd fengin að láni frá SvipunniVið erum hér saman komin í dag til að stofna Alþingi götunnar.

Hagsmunir fjármagnseigenda og innanbúðarmanna hafa ráðið för á Íslandi eftir hrun eins og fyrir hrun. Hagsmunir almennings hafa ekki hljómgrunn hjá stjórnvöldum nema í aðdragenda kosninga.

Kjör aldraðra, öryrkja og fatlaðra voru skorin niður strax. Skuldsetning heimila og fyrirtækja er látin vaxa óáreitt, með gjaldþrotum og nauðungaruppboðum. Launakjör skorin niður, uppsagnir og skattahækkanir. Allt kunnulegir fylgifiskar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þegar kemur að kreppulausnum.

Þeir sem djarfast spiluðu á útrásartímanum, halda gróðanum en tapið er lagt á herðar almennings. Stjórnlagaþing, lýðræðið, rödd og vald almennings er haft að háðung og spotti.

Axel Pétur Axelsson tók þessa myndHingað og ekki lengra, okkur er nóg boðið. Öll helstu kosningaloforðin svikin. Hvers vegna erum við gleymd daginn eftir kjördag? Erum við engin ógn við notalega tilveru ykkar í glerhúsinu? Baksvipur ykkar finnst okkur kuldalegur.

Við fylkjum liði með almenningi sem flykkist út á göturnar víða um heim, í Grikklandi, í Lettlandi og höfnum því að gróði nýfrjálshyggjunnar sé einkavæddur en tapið þjóðnýtt.

Þess vegna stofnum við Alþingi götunnar, til að snúa ykkur við í roðinu, til að þið hlustið á okkur, okkur sem kusum ykkur á þing. Valdið er okkar, þegnanna. Þið starfið í umboði okkar. Þannig er lýðræðið, er einhver týra logandi hjá stjórnvöldum eða var enginn að gæta eldsins?

Við krefjumst þess að höfuðstóll lána sé leiðréttur, verðtryggingin afnumin, skuldir fyrnist við þrot, þeir sem bera ábyrgð á kreppunni axli líka birgðarnar en ekki bara við skilvísir Íslendingar, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sendur úr landi og manngildið sett ofar fjármagninu, auðlindir landsins verði í ævarandi eigu þjóðarinnar og að við fáum verkfæri til að hafa hemil á ykkur, þingmönnum okkar.

Þetta er hlutverk Alþingis götunnar. Ég set hér með Alþingi götunnar og lýsi yfir stofnun þess hér á Austurvelli 6. mars árið 2010. Alþingi götunnar er hér með sett.

 

 
Umsagnir (1)
1 Föstudagur, 12 Mars 2010 09:49
Sigríður Helgadóttir
Jæja, nú er aldeilis komin tími til þess að hefjast handa við að láta bankanna og ríkisstjórnina vita að við látum ekki bjóða okkur þetta meir. Við vitum alveg nákvæmlega að það er nóg svigrúm til þess að leiðrétta höfuðstól lána. Nú vitum við að nýju bankarnir tóku bara helminginn af lánunum í gamla bankanum en alltaf sami hræðsluáróðurinn "almenningur verður að borga annars fer allt til fjandans" Þetta er ekki sangjarnt og nú stöndum við upp öll sem ein og mætum á morgun á Alþingi götunnar og látum vel í okkur heyrast! Ég hvet alla til þess að koma því við vitum líka það að ef ekkert er gert gerist ekki neitt. Losum okkur við doðan og mætum öll með helmini meiri kraft en hingað til!!!

Gefðu þína umsögn

Þitt nafn:
Þitt nefang:
Efnislýsing:
Umsögn (nota má HTML tög hér):

Bankareikningur samtakanna

Sparisjóður Suður Þingeyinga - Laugum.

Samtökin óska eftir frjálsum framlögum til styrktar starfinu.

Reikningurinn er: 1110-26-5202
kt. 520209-2120

Hópmálsókn

Umsagnir, article: "Alþingi götunnar - Stofnyfirlýsing"