Fundir á Austurvelli

  • Skoða sem PDF skjal
Undirritaður mætti á Austurvöll og fékk með sér 4 félaga til að mæta. Við erum sammála því að nauðsynlegt sé að mæta á þessa fundi og að sorglegt finnst að sjá hversu fáir mæta þrátt fyrir þann mikla fjölda sem er lentur í hremmingum eftir glæpastarfsemi orfárra bankamanna, viðskiptamanna, embættismanna og stjórnmálamanna. Við fórum á kaffihús eftir fundinn og veltum fyrir okkur hvers vegna mætingin væri svona dræm. Við teljum að færa ætti fundina yfir á sunnudaga, þá eiga fleiri frí og hafi frekar möguleika á að mæta. Ég hefi t.d. heyrt suma segja að þeir geti ekki komið vegna fótboltaleiks í sjónvarpinu. Annað sem við teljum að ætti að gera er að stytta fundina, þ.a. þeir verði hámark 30 mínútur. Ræður fara oft fyrir ofan garð og neðan, því í sumum heyrist nánast ekkert útá völlinn. Í lok fundarins voru menn farnir að tínast í burtu og fundurinn farinn að leysast upp, enda fólki orðið kalt að standa hreyfingalaust. Fundirnir ættu að vera meira í slagorðastíl og aðalatriðið er að fá sem flesta til að mæta, það er fjöldinn sem veitir slagkraft, reynslan sýnir að stjórnmálamenn hlusta ekki á upphrópanir örfárra manna. Við þurfum meiri fjölda. Magnús