Fólkið mótmælir okurlánastarfsemi og blekkingum bankanna.
Samkvæmt talningu voru tæplega 400 manns á Austurvelli laugardaginn 16. janúar. Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsleiðtogi frá Akranesi og Guðrún Dadda Ásmundardóttir, stjórnarkona í HH tóku til máls og Lúðvík Lúðvíksson (NÍ) stjórnaði fundinum.
Skorað var á alþingismenn að mæta og tóku þó nokkrir þeirri áskorun. Vinstri grænir voru á flokkráðsfundi á Akureyri. Nýtt Ísland vakti eitthvað af þingmönnum um morguninn, þ.á.m. Árna Pál Árnason.
Vilhjálmur Birgisson var ekkert að skafa af því og skaut m.a. föstum
skotum á verkalýðsforystuna. Hann sagði hana á villigötum, snúast um eitthvað allt annað en umbjóðendurna, hún væri of tengd valdakerfi stjórnmálaflokka og lífeyrissjóðakerfið væri ólýðræðislegt. Vilhjálmur hrósaði Hagsmunasamtökum heimilanna og tók undir kröfur og málflutning samtakanna.Vilhjálmur ræddi einnig Icesave málið og er ekki hægt að segja annað en fundarmenn hafi tekið undir sjónarmið hans.
Guðrún Dadda áréttaði kröfur HH og ræddi ýmis gullin gildi fjölskyldunnar.





















