Sammmála með VONINA sem HH gefur okkur Íslendingum!
Kæri Vilhjálmur! Við megum vera ofboðslega þakklát fyrir samtök eins og HH - því annars hefði þessi snilldargrein þín fengið að týnast einhversstaðar - ja t.d. ef þú hefðir sent hana í fréttablöðin okkar! Þarna lýsir þú nákvæmlega með kr.tölum hvernig staðan er hjá þúsundum Íslendinga. Staðan er svo alvarleg hjá fólkinu okkar, og ég tek undir með Önnu Margréti Bjarnadóttir. Bankarnir og bifireiðaumboðin hreinlega ýttu okku að gengistryggðu lánunum. Aftur á móti eru fleiri og fleiri sem koma í fjölmiðlana sem vara við því sem ég skrifaði hér hjá HH að "Varið ykkur á að breyta gengistryggðu lánunum í íslenskt lán" þó allir bjóði einhverja 30% niðurfellingu á erlenda láninu, þá kemur mánaðargreiðslan út á sömu tölu og var á gengistryggða láninu.
Ég er að reyna að fá einhverja concret tölu á hversu margir eru á leiðinni að missa þakið ofan af sér - strax í febrúar á næsta ári. Við í heimavarnarliðinu ætlum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að hjálpa ykkur - Látið í ykkur heyra!!! Engin hér hjá Hagsmunasamtökum heimilana er að gefast upp, nei nema síður sé, nú er baráttuhugur í mönnum, eins og allir hefðu átt að heyra ef þið hefðuð komið á útifundina á Austurvellinum. Þökkum miklu fremur fyrir HH og mætið á Austurvelli á næsta fundi, þá fáið þið beint í æð baráttuhug HH. HH!!! Takk enn og aftur fyrir að vera til!







