Gengistryggð lán
Maður verður var við þessi annarlegu viðhorf gagnvart fólki sem að tók gengistryggð lán hjá afmörkuðum hóp úti í samfélaginu, sérstaklega Samfylkingarfólki. Þarna eru bankar að varpa ábyrgðinni yfir á almenning. Mörgum var ráðlagt að taka gegnistryggð lán af sölumönnum bankanna sem að þáðu háar bónusgreiðslur fyrir að ná því að selja sem flestum gengistryggð lán. Ekki gleyma því. Auglýsingum ringdi yfir fjölmiðla í sjónvarpi, útvarpi og dagblöðum. Mér eru minnisstæðar auglýsingarnar frá Frjála fjárfestingabankanum haustið 2007 undir yfirskriftinni ,,lækkaðu greiðslubyrgðina" ....þar sem fólk var hvatt til að sameina óhagstæð lán með hárri greiðslubyrgði og taka í þeirra stað eitt erlent lán.







