
AGS telur að viðeigandi skuldaaflétting heimila þurfi að koma til innan 12 mánaða. Viðhorf Mark Flanagan til lántakenda gengistryggðra íbúðalána vakti undrun fulltrúa HH.
Fulltrúar stjórnar HH áttu fund með Mark Flanagan og Franek Rozwadowski hjá AGS fimmtudaginn 3. desember sl. Á fundinum var farið yfir stöðu heimilanna og afstaða AGS til stöðu þeirra hér á landi skýrð. Fyrir hönd Hagsmunasamtakanna sátu fundinn Marinó G Njálsson ritari, sem átti frumkvæði að því að kalla eftir fundinum, Arney Einarsdóttir gjaldkeri, Friðrik Ó Friðriksson formaður stjórnar og Ólafur Garðarsson varaformaður.
Fulltrúar HH skýrðu frá því hversu aðgerðir stjórnvalda og fjármálageirans væru langan veg frá því að vera fullnægjandi til að svara svo mikið sem lágmarksþörfum heimilanna um endurskipulagningu lánaskuldbindinga og hvaða áhrif greiðslujöfnunarleiðin geti haft til lengri tíma litið á fjárhag þeirra heimila sem ekki hafa afþakkað það úrræði. M.a. var kallað eftir því að AGS leitaði upplýsinga um það hvaða hópar það væru sem hefðu þegið greiðslujöfnunina, annars vegar í ljósi tekna og hins vegar í ljósi menntunar, þar sem ætla megi að þeir sem hafi þegið úrræðið séu annað hvort í mjög slæmri stöðu, eða skilji jafnvel ekki hvað felst í úrræðinu til lengri tíma litið. Einnig var bent á að fjármálakerfið hefði skaðað hagkerfið óbætanlega en það ætlaðist nú til þess að heimilin bættu þeim skaðann með upptöku á húseignum og öðrum eignum heimila i landinu. Einnig var bent á að afskriftir til nýju bankanna væru alls ekki að skila sér áfram til heimilanna og fékkst staðfest hjá AGS mönnum að þeir hefðu sambærilegar áhyggjur af því máli, þ.e.a.s. að fjármálafyrirtækin væru ekki að láta afskriftirnar ganga áfram til heimilanna eins og þeim bæri að gera.
Eins og áður hefur komið fram telur AGS að svigrúm til afskrifta til heimilanna sé allt að 600 milljarðar og fékkst það staðfest á fundinum að það sé nærri lagi. Þó skal tekið fram, að eitthvað af þessu er mat á framtíðarvaxtatekjum, sem myndu tapast. Hagsmunasamtök heimilanna hafa haldið því fram að afskriftir sem þurfi að koma til strax séu 250 milljarðar með almennum aðgerðum þeim sem þau hafa barist fyrir, allt frá stofnun samtakanna þann 15. janúar sl., þegar eingöngu er litið til lækkunar höfuðstóls lánanna. Inni í þeirra tölu hefur ekki verið lagt mat á áhrif breyttra vaxta á greiðslubyrðina. Með tillögum HH megi forða stærstum hluta heimila frá mjög alvarlegum búsifjum og skaða og jafnvel mörgum frá gjaldþroti og jafnframt meira jafnræðis og sanngirni gætt en nú er raunin. Þau úrræði, sem þegar hafa verið hönnuð, verði síðan nýtt með nánari stillingum til að taka á þeim heimilum sem enn eru í vanda þrátt fyrir ofangreindar almennar aðgerðir. HH hafa frá upphafi varað við efnahagslegum afleiðingum þess að setja heimilin í fjárhagslega spennitreyju og þeirra keðjuverkandi áhrifa sem það hefur á allt hagkerfið og þar með talið tekjur stjórnvalda. Það birtist í því að neysla hefur dregist verulega saman, fasteignamarkaður er hruninn og innlend framleiðsla og neytendamarkaður á brauðfótum. Atvinnuleysi eykst, tekjur hafa minnkað hjá þeim sem enn hafa vinnu, m.a. vegna launalækkana og annarra samdráttaraðgerða fyrirtækja, framleiðni dregst saman, fólksflótti frá landinu eykst og tekjur ríkissjóðs dragast saman. Þessar kröfur samtakanna voru ítrekaðar á fundi með AGS og farið yfir hugmyndir um útfærslu þeirra og kostnað.
Í ljósi viðbragða fulltrúa AGS metur stjórn HH að AGS sé í meginatriðum sammála samtökunum um að þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur þegar gripið til, þ.e.a.s. greiðslujöfnun, skuldaaðlögun og greiðsluaðlögun séu allsendis ófullnægjandi, sama hvort til skamms eða lengri tíma sé litið. AGS lítur svo á að endurskipulagning skulda heimilanna, eða það sem AGS kalla "appropriate debt relief" þurfi að gerast á næstu 12 mánuðum og að betra sé að afskrifa lánin niður í viðráðanlegar stærðir fyrr en seinna. Fulltrúar AGS fóru varlega í að ræða tilteknar upphæðir í þessu sambandi en viðurkenndu að mat HH á afskriftarými til heimilanna upp á um 600 milljarða væri nærri lagi. Mark Flanagan tók þá fram, að ætlast væri til að bankarnir nýttu til fulls þann afslátt sem fengist hefði við tilfærslu lánasafna heimilanna frá gömlu bönkunum til þeirra nýju. Hvorki krónu minna né meira. Þeir félagar sögðu einnig að rýmið sem Íbúðalánasjóður hefði til samsvarandi leiðréttinga væri mun minna og varla gert nema með aðkomu skattgreiðenda. HH telur það þó ekki fullreynt nema að undangengnum umræðum um hugsanlegar lausnir.
Fulltrúum stjórnar HH var hins vegar brugðið við umsögn Mark Flanagan um fólk sem tók gengistryggð lán og það undarlega viðhorf sem það lýsir, en stjórnarmenn hafa einnig orðið varir við þetta undarlega viðhorf síðustu mánuði hjá ríkisstjórninni og fulltrúum hennar. Þetta viðhorf bendir til þess að fórna eigi alfarið þessum hópi lántakenda (heimilum) á altari hrunsins. Mark Flanagan lýsti því einfaldlega yfir að þeir sem tóku gengistryggð lán hafi verið óábyrgir (irresponsible). Fulltrúar HH gerðu sitt besta til að gera hr. Flanagan grein fyrir því að þeir sem tóku gengistryggð láni hafi í raun verið að flýja verðtrygginguna (sbr. 18% verðbólgu ársins 2008) og að enginn gat búist við (og þaðan af síður voru heimilin vöruð við) hvorki af fjármálafyrirtækjum né stjórnvöldum, að gengi erlendra gjaldmiðla gæti hækkað um allt að 150%. Vakin var m.a. athygli á því að greiningardeildir bankanna héldu uppi stöðugum áróðri meðal almennings um að hér væri allt í góðu lagi og engin ástæða til að hafa áhyggjur. Því bjuggust þeir, sem tóku gengistryggð lán við í mesta lagi 20-30% sveiflum, sem ætla má að þeir hafi verið þokkalega í stakk búnir til að taka á sig. Á hinn bóginn sér það hver maður (og kona) að 50% hrun krónunnar, og þaðan af meira gagnvart einstökum gjaldmiðlum, er ígildi hamfara á fjármálamarkaði og mjög fá heimili undirbúin undir að slíkt geti gerst. Einnig var bent á það að núverandi staða þeirra heimila sem tóku gengistryggð íbúðalán, sem er um 11% heimila í landinu, væri tilkomin vegna ábyrgðarlausrar hegðunar fjármálafyrirtækja og þ.m.t. stöðutöku þeirra gegn krónunni sem og markaðssetningu greiningardeilda (markaðsdeilda) bankanna á "góðu ástandi" hér á landi, sem og eftirlitsleysi stjórnvalda.
Ekki var deilt frekar um meinta ábyrgðarlausa hegðun almennings að svo stöddu hvað varðar gengistryggð lán. Í máli AGS manna kom þó fram að þeir telja að fyrrum eigendum og stjórnendum bankanna hafi þegar verið refsað nægilega. HH benti þá á að nýju bankarnir væru að reyna að hagnast á afskriftunum og létu þær ekki ganga áfram í reynd. Bent var á að aðgerðir bankanna væru fyrst og fremst sýndaraðgerðir með það að markmiði að halda eftir meginhluta afskriftanna og tryggja efnahagsreikning bankanna með skuldum heimilanna. Einnig bentu fulltrúar HH á víxlverkun verðtryggingar, verðbólgu og peningamagns í umferð, þ.e. að litlar líkur séu á að ástandið lagast þegar verðbreytingar leiði sjálfkrafa til útgáfu nýs fjármagns í bókum fjármagnseigenda. Vakin var athygli á því að gengi krónunnar muni seint jafna sig undir þessum skilyrðum sem skapar enn ríkari ástæðu til að leiðrétta lánaskuldbindingar heimilanna, og þar með talið gengistryggðu lánin.
Mark Flanagan og Franek Rozwadowski þökkuðu fyrir fundinn og tjáðu fulltrúum HH að þeir töldu þennan fund mikilvægan til að vera í tengslum við fulltrúa heimilanna og til að fá upplýsingar um stöðu mála frá þeirra sjónarhorni, áður en þeir hittu fulltrúa íslenska stjórnkerfisins. Sendinefnd HH þakkaði sömuleiðis fyrir fundinn og fyrir að fá þetta tækifæri til að fara yfir og útskýra nánar stöðu heimilanna, fara yfir greiningar samtakanna á stöðu mála og til að tala máli heimilanna. Verður að segjast eins og er að fulltrúar AGS voru að mati stjórnar HH mun hreinskilnari í tilsvörum en íslensk stjórnvöld hafa verið í samskiptum við samtökin til þessa.





















Ég er að reyna að fá einhverja concret tölu á hversu margir eru á leiðinni að missa þakið ofan af sér - strax í febrúar á næsta ári. Við í heimavarnarliðinu ætlum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að hjálpa ykkur - Látið í ykkur heyra!!! Engin hér hjá Hagsmunasamtökum heimilana er að gefast upp, nei nema síður sé, nú er baráttuhugur í mönnum, eins og allir hefðu átt að heyra ef þið hefðuð komið á útifundina á Austurvellinum. Þökkum miklu fremur fyrir HH og mætið á Austurvelli á næsta fundi, þá fáið þið beint í æð baráttuhug HH. HH!!! Takk enn og aftur fyrir að vera til!
Haldið áfram ykkar góða starfi.