Ágætis athugasemdir
Það vantaði nöfn listamannanna þegar fréttin var skrifuð en þeim verður bætt inn um leið og þau hafa borist.
1. Já ræðurnar voru of langar, sérstaklega hjá EMG. Það verður að viðurkennast.
2. Komum þessari athugasemd áleiðis.
3. Viljum ekki ritskoða ræðumenn. HH kemur sínum sjónarmiðum að en reynir ekki að útiloka önnur. Engin afstaða hefur verið tekin til Icesave af hálfu HH og engin krafa er til um að formleg afstaða verða tekin. Aðrir halda uppi málflutningi um Icesave mál og við reynum ekki að kæfa það. Svo er alls ekki útilokað að fólk sem er á móti stefnu HH tali á þessum fundum. Þannig er lýðræðið, fólk hefur leyfi til að vera ósammála.







