Fundurinn í gær - 5. des. 09

  • Skoða sem PDF skjal
Þakka fyrir ykkar frumkvæði að fundinum í gær. Ég hef lengi dást að ósérhlífni forystumanna Hagsmunasamtaka heimilanna. Mig langar að koma að þremur athugasemdum: I. Ræðurnar á fundinum í gær voru að mínu viti allar góðar nema að einu leyti sem er vandamál sem alltaf - frá því ég man eftir mér - hefur einkennt íslenska útifundi: Of langar ræður. Ræða Einars Más var alltof löng en ræðuna hefði að ósekju mátt stytta. Voru ekki í henni vissar endurtekningar? Ef það er rétt munað hjá mér tel ég það afar óheppilegt á útifundi í köldu veðri. Afleiðingin varð sú að menn fóru að tínast burt af fundinum meðan á ræðunni stóð. Ég kom mér fyrir við styttuna og varð óþyrmilega vör við þegar fundarmenn tóku að hverfa á brott þegar ræðan dróst á langinn. 2. Þar sem eru þrír ræðumenn finnst mér óþarfi af fundarstjóra að halda "miniræður" á milli atriða og lengja þar með fundinn. Stuttir, hnitmiðaðir, stemningsfundir eru miklu áhrifameiri en langir fundir sem þynnast út. 3. Ég efast um að rétt sé af Hagsmunasamtökum heimilanna að draga Icesave-málið inn í umræðuna um skuldir heimilanna. Auðvitað veit ég að öll fjármál ríkisins tengjast en ég tel að það sé vænlegra til árangurs - og til þess að afla baráttumáli Hagsmunasamtakanna (þ.e. leiðréttingu lána) fylgis meðal almennings að beina umræðunni að því máli en drepa því ekki á dreif með því að taka fleiri ágreiningsmál með. Ég heyrði menn í kringum mig hafa orð á þessu. Persónulega þekki ég fjölda manns sem styður baráttuna fyrir leiðréttingu lána en telur nauðsynlegt og ekkert hægt að gera annað í stöðunni en að samþykkja Icesave-samninginn. Bið ég forsvarsmenn Hagsmunasamtaka heimilanna að huga að taka ofanritað til umræðu fyrir næsta fund. Með bestu kveðju, Hanna Kristín Stefánsdóttir