HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Um samtökin Viðburðir Austurvöllur: Vel heppnaður útifundur

Austurvöllur: Vel heppnaður útifundur

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Eitthvað er á reyki hversu margir sóttu útifundinn á Austurvelli. Fimm mínútum fyrir fundinn virtust fáir mættir en nokkrum mínútum síðar streymdi fólk að þ.e. um leið og Andrea J Ólafsdóttir og Guðrún Dadda Ásmundardóttir fundarstjórar tóku til máls. Greinilegt var að fólk beið á kaffihúsunum í kring eftir að heyra eitthvað. Um 15:10 voru allt að eitt þúsund manns á Austurvelli. Myndir sem teknar voru af fundinum benda til að fólk hafi verið að koma og fara þær 30 mínútur sem framsögumenn fluttu erindi sín. Einhver fjölmiðill taldi 200 manns en það hefur líklega verið áður en fundur hófst eða eftir að framsögumenn höfðu lokið máli sínu. Þannig fréttaflutningur er frekar bágborinn satt best að segja og virðist miða að því að gera lítið úr viðburðinum.

Ræðumenn voru Ólafur Garðarsson varaformaður HH, Lúðvík Lúðvíksson frá Nýtt Ísland og Björn Þorri Viktorsson hdl. Erindi Ólafs fjallaði um skuggavaldhafa landins, verðtrygginguna, greiðsluverkfallið og kröfur Hagsmunasamtaka heimilanna. Lúðvík fjallaði um óréttmætar kröfur á heimilin og hvatti okkur til að halda höfðinu hátt og krefjast réttlætis. Okkar væri valdið í raun, við þurfum bara að taka það. Björn Þorri minnti okkur á að það eru persónur á bak við þá stefnu sem rekin er í landinu. Í erindinu nefndi hann fjölda einstaklinga sem bera ábyrgð og honum var tíðrætt um niðurlægingu Alþingis og yfirgang framkvæmdavaldsins og hverjir hefðu kverkatak á því. Málflutningur Björns studdi í megin atriðum áherslur Ólafs og Lúðvíks varðandi valdhafa sem voru aldrei kosnir til valda en stjórna hér meira og minna út frá sérhagsmunum fámennra hópa. Sjá má erindi fundarins hér á hjara veraldar.

Á eftir ræðumönnum tóku almennir fundargestir til máls. Á meðal þeirra sem tóku til máls voru Dagur Jóhannsson (14) og Kristín Snæfells Arnþórsdóttir en þess má geta að birt var innsend grein eftir Kristínu hér á vefsíðu heimilin.is. Það er ekki oft að svo ungt fólk sem Dagur láti þjóðmálin sig varða. Við hrósum honum fyrir þá hugprýði sem hann sýndi og þökkum stuðninginn við málstað heimilanna.

Góður rómur var gerður að þeirri hugmynd að leyfa fundargestum að stíga á stokk og láta hug sinn í ljós. Hljóðkerfið, "sviðið" og hugmyndin komu frá Nýtt Ísland sem tóku umleitan Hagsmunasamtaka heimilanna um samvinnu fagnandi þegar eftir var leitað. Við viljum þakka Lúðvíki Lúðvíkssyni og félögum hans í Nýtt Ísland fyrir frábært samstarf um þennan fund. Stjórn HH og greiðsluverkfallsstjórn HH þakka Andreu Ólafsdóttur, Guðrúnu Döddu Ásmundardóttur og Hólmsteini Brekkan og öllum félagsmönnum sem lögðu hönd á plóginn við að koma fundinum saman fyrir hönd HH.

Lúðvík Lúðvíksson hét því að Nýtt Ísland mundi halda útifundi á Austurvelli á hverjum laugardegi nú í framhaldinu. 

 
Umsagnir (1)
1 Miðvikudagur, 02 Desember 2009 11:27
Gunnar Björn
-Hvet ykkur til þess að halda áfram með fundina ykkar niður á Austurvelli. Það er nauðsynlegt að mótmæla þeirri eignaupptöku sem fólk þarf að þola. Það verður að vekja valdhafa með einhverjum hætti.

Gefðu þína umsögn

Þitt nafn:
Þitt nefang:
Efnislýsing:
Umsögn (nota má HTML tög hér):

Bankareikningur samtakanna

Sparisjóður Suður Þingeyinga - Laugum.

Samtökin óska eftir frjálsum framlögum til styrktar starfinu.

Reikningurinn er: 1110-26-5202
kt. 520209-2120

Hópmálsókn

Umsagnir, article: "Austurvöllur: Vel heppnaður útifundur"