Friðrik Ó Friðriksson tekur við formennsku Hagsmunasamtaka heimilanna

  • Skoða sem PDF skjal

Þórður Björn Sigurðsson lét af formannshlutverki sínu og sagði sig jafnframt úr stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna á stjórnarfundi að kvöldi 5. nóvember 2009. Þórður tilkynnti stjórninni að hann hefur tekið að sér starf aðstoðarmanns formanns Hreyfingarinnar og í ljósi samþykkta HH um hlutleysi samtakanna gagnvart stjórnmálaflokkum mæti hann stöðu sína svo að hann yrði að víkja úr stjórn HH til að sinna hinu nýja starfi.

Stjórn HH færir Þórði bestu þakkir fyrir frábært starf í þágu samtakanna og óskar honum velfarnaðar í nýju starfi. Þess má geta að Þórður er einn af frumkvöðlum samtakanna en þau spruttu úr undirskriftasöfnun sem Þórður hóf í nóvember 2008. Samþykktir félagsins kveða á um að stjórnin skipti með sér verkum. Stjórnin var einróma um að óska eftir því við Friðrik Ó Friðriksson að hann tæki við hlutverki formanns. Friðrik þáði stöðuna og þakkaði stjórninni traustið. Vænta má skeytis frá nýja formanninum til félagsmanna fljótlega.

Arney Einarsdóttir var kjörin gjaldkeri samtakanna og Guðrún Dadda Ásmundardóttir færðist sjálfkrafa úr varastjórn í aðalstjórn en það er byggt á atkvæðafjölda við stjórnarkjör á aðalfundi samtakanna í apríl 2009.

Lesa má skilaboð Friðriks til félagsmanna hér.