Erindi Theódórs Norðkvist fyrir hönd greiðsluverkfallsnefndar HH Iðnó 2. nóv. 2009

  • Skoða sem PDF skjal
Fundarstjóri, félagsmálaráðherra, þingmenn, aðrir fundargestir. Hvað er greiðsluverkfall? Hugtakið er sótt í verkalýðsbaráttuna frá því seint á 19. öld, þegar verkamenn fóru að leggja niður vinnu til að mótmæla bágum kjörum og aðbúnaði og knýja fram úrbætur í þeim málum. Neyslukynslóðir nútímans vita oft ekki eða gleyma að þau réttindi sem þykja sjálfsögð í dag komu ekki til okkar á silfurfati. Fyrir þeim þurfti að berjast oft á tíðum mjög hatrammri baráttu.

Þar á meðal er 40 stunda vinnuvika, yfirvinnukaup og verkfallsrétturinn. Það er von samtakanna að réttindabarátta þeirra í þágu skuldara beri þann ávöxt, að rétturinn til að hætta að borga af lánum í mótmælaskyni vegna óréttlátra lánakjara, verði viðurkenndur á sama hátt og verkfallsréttur stéttarfélaga.

Greiðsluverkfallsstjórn var skipuð í ágúst af stórn Hagsmunasamtaka heimilanna í samræmi við ályktun félagsfunda sem haldnir voru 23. júní í Reykjavík, Keflavík, á Selfossi, Egilsstöðum og Akureyri. Greiðsluverkfallsstjórn var heimilað að blása til greiðsluverkfalls, sem hún gerði og skyldi það hefjast 1. október. Þeir sem eru með fasteigna- og bifreiðalán voru hvattir til að gera eitthvað af eftirtöldu:
  1. Draga afborganir af lánum í 15 daga
  2. Greiða samkvæmt greiðsluáætlun.
  3. Taka út eða flytja innistæður úr ríkisbönkum.
  4. Segja upp kortaviðskiptum og greiðsluþjónustu.
  5. Taka þátt í öðrum aðgerðum Hagsmunasamtaka heimilanna eða opinberum mótmælum.

Tilgangurinn var ekki að valda tjóni, heldur að meta viðbrögð fjármálastofnana og ríkisins og koma róttækri hugmynd á framfæri. Í ljós kom að verkfallið olli töluverðum titringi hjá ríki og lánastofnunum. Frásagnir bárust um að erfitt væri að fá greiddar úttektir úr bönkum og tekið hefði verið út af reikningum til greiðslu lána daginn fyrir gjalddaga áður en laun eru venjulega lögð inn. Í a.m.k. einu tilfelli hækkaði bankinn yfirdráttarheimild einhliða til að geta skuldfært lánaafborganir hjá viðkomandi.

Loks má nefna hið dæmalausa útspil félagsmálaráðherra, þegar hann lét berast til fjölmiðla efnisatriði úr lagafrumvarpinu sem hann kynnti okkur hér áðan, aðeins fáeinum dögum áður en boðað greiðsluverkfall átti að hefjast. Við lítum svo á að þessari aðgerð hafi verið beint gegn greiðsluverkfallinu. Ætlunin var að gera almenning afhuga því að grípa til aðgerða, því einhver gulrót væri í sjónmáli. Frumvarpið hvarf líka alveg úr kastljósi fjölmiðlanna þangað til við fréttum að það hefði verið samþykkt af öllum viðstöddum þingmönnum nema Þóri Saari, en takið eftir: 30 þingmenn voru ekki viðstaddir. Hvernig er það, mega þingmenn skrópa í vinnunni þegar þeim sýnist?

Hagsmunasamtök heimilanna hafa undir höndum minnisblöð frá ASÍ sem benda til að frumvarpið hafi verið samið að stórum hluta af aðalhagfræðingi þeirra. Ljóst er að ríkisstjórnin hefur haft víðtækt samráð við banka og lífeyrissjóði við gerð frumvarpsins, en ekki við Hagsmunasamtök heimilanna, þrátt fyrir yfirlýsingar talsmanna stjórnvalda í þá veru.

Heimilin eru grunnstoð samfélagsins. Hvort sem um er að ræða kjarnafjölskylduna, gagnkynhneigða eða samkynhneigða sambúðaraðila, einstaklinga sem búa saman til að deila kostnaði, eða hvaða annað sambúðarform. Hagsmunasamtök heimilanna gera engan greinarmun á heimilum í sinni baráttu, en leggja áherslu á að gæta hagsmuna þeirra yngstu og þeirra sem ekki geta varið sig fyrir ofríki.

Kröfum Hagsmunasamtaka heimilanna um leiðréttingu höfuðstóla íbúðalána og annarra neytendalána heimilanna, endurskoðun á verðbreytingarákvæðum íbúðalána og afnámi verðtryggingar, hefur ekki verið mætt. Hvorki stjórnvöld, Samtök fjármálafyrirtækja né Landssamband lífeyrissjóða hafa tekið boði samtakanna um samningaviðræður.

Greiðsluverkfallsstjórn sér sig því tilneydda til að boða aftur til greiðsluverkfalls, í þetta sinn frá 15. nóvember til 10. desember. Félagsmenn sem aðrir með fasteigna- og bifreiðalán á herðunum eru hvattir til að greiða ekki af lánum sínum á tímabilinu og taka innistæður út úr ríkisbönkum. Við köllum á alla landsmenn að berjast fyrir heimili landsins og taka þátt í greiðsluverkfallinu. Ég þakka áheyrnina