Fullt út úr dyrum á fundi í Iðnó

  • Skoða sem PDF skjal

Færri komust að en vildu á opnum borgarafundi í Iðnó, mánudagskvöldið 2 nóv. 2009. Framsögumenn voru Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra, Marinó G. Njálsson úr stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna, Jóhann G. Jóhannsson viðskiptafræðingur og Theódór Norðkvist úr greiðsluverkfallsstjórn Hagsmunasamtaka heimilanna.

Erindin voru snörp, félagsmálaráðherra fór yfir aðgerðir ríkisstjórnarinnar og Marinó G Njálsson veitti þeim harða gagnrýni í kjölfarið. Jóhann G. Jóhannson sagði frá tillögum sínum varðandi yfirfærslu allra íbúðalána yfir í Íbúðalánasjóð og er óhætt að segja að tillögurnar vöktu mikla athygli fundargesta. Theódór Norðkvist fór yfir bakgrunn, tilgang og árangur síðasta greiðsluverkfalls og tilkynnti jafnframt um næsta greiðsluverkfall 15. nóvember til 10 desember við mikinn fögnuð fundargesta.

Þetta var best sótti opni fundur HH hingað til ef frá er talinn útifundur á Austurvelli, vorið 2009. Mikill hiti var í fundargestum og fengu þingmenn og ráðherra að heyra ýmislegt sem ekki verður haft eftir á prenti (sumt fæst ekki upplifað nema vera á staðnum). Þingmennirnir og félagsmálaráðherra svöruðu fyrirspurnum eftir bestu getu og þurftu að þola nokkurn hita í þeim efnum eins og áður sagði. Þeir mega eiga það sér til hróss að mæta og vera í forsvari á svona viðburði þar sem vita má að gagnrýnin getur verið snörp og óvægin.

Þeir þingmenn sem voru til svara utan Árna Páls Árnasonar (SF) voru Eygló Harðardóttir (Framsókn), Lilja Rafney Magnúsdóttir (VG), Unnur Brá Konráðsdóttir (xD) og Þór Saari (Hreyfingin).

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna vill þakka framsögumönnum fyrir erindin og þingmönnunum fyrir að sýna félagsmönnum HH hug sinn með því að taka áskorun um að standa í forsvari. Síðast en ekki síst þakkar stjórnin fundargestum komuna og vonar að þeir hafi haft gagn og gaman af fundinum. Starfsfólk Iðnó á einnig heiður skilinn fyrir faglega þjónustu við fundarhaldara og fundarmenn.

Birt með leyfi Lifandi mynda en þeir kvikmynduðu fundinn