Fulltrúar stjórnar Hagsmunasamtaka heimilanna áttu 90 mín. fund með forsætisráðherra, fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra í stjórnarráðinu morguninn 21. október 2009. Fundurinn var að beiðni stjórnar HH og m.a. í þeim tilgangi að kynna málstað HH og mat samtakanna á frumvarpi félagsmálaráðherra um úrræði við skuldavanda heimilanna. Fundinn sat einnig Hrannar B Arnarsson aðstoðarmaður forsætisráðherra. Í upphafi fundar eftir viðtöku gagna frá HH kom forsætisráðherra sér beint að efninu og bauð formanni samtakanna að bera upp erindið. Þórður B Sigurðsson og Friðrik Ó Friðriksson skiptust á að fara yfir helstu atriði varðandi skuldastöðu heimilanna, áhrif verðbreytingarákvæða lánasamninga á þá stöðu og gagnrýni samtakanna á áætluð úrræði stjórnvalda. Aðrir fulltrúar stjórnar HH á fundinum voru Andrea J. Ólafsdóttir, Ólafur Garðarsson og Vilhjálmur Árnason.
Ráðherrarnir hlustuðu á málflutninginn til enda en þá tók Steingrímur J Sigfússon til máls og greindi frá afstöðu fjármálaráðuneytisins undir hans stjórn. Fjármálaráðherra svaraði síðan spurningum en neyddist svo til að yfirgefa fundinn vegna annarra skuldbindinga og þökkuðum við honum hans athygli og innlegg. Þá fóru fram fjörugar umræður um vanda heimilanna og er óhætt að segja að allir viðstaddir hafi lagt sitt af mörkum, ekki síst félagsmálaráðherra Árni Páll Árnason sem að sjálfsögðu varði frumvarp síns ráðuneytis og áætlaðar aðgerðir stjórnvalda.
Helstu áhersluatriði fulltrúa HH voru eins og áður sagði skuldsetning heimila landsmanna af völdum verðbreytingarákvæða lánasamninga en síðan 1. jan. 2008 nemur sú skuldaaukning 700 milljörðum að stórum hluta vegna verðbreytingarákvæða. Verðtrygging er að reynast ein helsta ógn við langtíma fjárhagslegt sjálfstæði heimilanna að mati stjórnar HH en staða gengistryggðra lána brýnasta úrlausnarefnið þegar þetta er ritað. Vonandi fer að draga til tíðinda varðandi lögmæti gengistryggðra lána en engin dagsetning er komin á prófmál að svo stöddu nema vegna bílalána. Fyrsta málið af því tagi verður tekið fyrir föstudaginn 13. nóv. 2009.
Jöfnun ábyrgðar milli lántakenda og lánveitenda var reifuð, leiðrétting höfuðstóla og hugsanlegur kostnaður við það auk hugmynda um hvernig ríkið getur forðast nánast allan kostnað af þeirri aðgerð. HH telur að setja þurfi þak á bæði verðbætur og vexti íbúðalána. Rædd var krafa landsfunds VG um endurskoðun á því hvernig vísitala neysluverðs (vnv) er notuð við útreikninga lána og einnig hvernig vísitalan sjálf er reiknuð.
Athugasemdir HH við frumvarp félagsmálaráðherra má lesa hér en fulltrúar HH stikluðu á stóru í þeim lista. Með vísan til umsagnar HH um frumvarpið var lagt til að afgreiðslu málsins yrði frestað. HH lýsti áhyggjum yfir að ofbeldi gegn einstaklingum og friðhelgi heimila væri rétt að byrja ef ekki væri tekið rösklega á grundvallar réttlætis málum gagnvart almenningi. Verði gengið að kröfum HH um réttlæti og jafnræði gæti það leitt til þess að almenningur gengur í lið með stjórnvöldum til öflugrar endurreisnar efnahagslífsins. Án vonar um öryggi fjölskyldunnar og betri framtíðar munu heimilin hins vegar verða upptekin af að berjast fyrir grunnþörfum sínum og tilverurétti. Svört atvinnustarfsemi gæti orðið alvarlegra vandamál en við höfum hingað til séð og eru nú þegar vísbendingar í farvatninu um þá þróun.
Ráðherrunum var boðið að taka þátt í fundinum í Iðnó, 2 nóv. næstkomandi og hefur félagsmálaráðherra þekkst boð um framsögu á fundinum. Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir svaraði því til aðspurð um frekari frestun nauðungaruppboða, að ríkisstjórnin hefði í hyggju að fá þá frestunina framlengda fram í febrúar. Stjórn HH fagnar því, enda nauðsynlegt að þingheimur gefi sér góðan tíma til nauðsynlegrar umræðu og breytinga á frumvarpi félagsmálaráðherra.
Forsætisráðherra beindi jafnframt þeim óskum til stjórnar HH og félagsmálaráðherra að halda uppi samræðum og samvinnu um aðgerðir fyrir heimilin en félagsmálaráðherra tók vel í það sem og fulltrúar HH enda var það meðal annars tilgangur fundarins.







