Fundarstjóri, kæru fundarmenn.
Aðdragandinn að stofnun Hagsmunasamtaka heimilanna hefur verið fyrir mér eins og ég væri staddur í ævintýri. Ég vil byrja á að þakka Þórði B Sigurðssyni fyrir að hafa hrundið af stað undirskriftalistanum sem var upphafið að því sem við erum að gera. Ég vil þakka Þorvaldi Þorvaldssyni (Valda) fyrir að hafa boðið sig fram til góðra verka á hárréttum tíma og ýtt okkur af stað til frekari aðgerða. Vésteinn Gauti Hauksson, Arney Einarsdóttir og Ásta Rut Jónasdóttir bættust svo í hópinn og vil ég þakka þeim þær fórnir sem þau hafa fært til að Samtökin gætu orðið til.
Einnig vil ég þakka þeim fjölmörgu sem hafa mætt á vinnufundina okkar í Borgartúni 3 og hjálpað við að meitla þá hugmyndafræði sem hagsmunasamtökin ætla að standa fyrir. Síðast en ekki síst vil ég þakka Steini Finnbogasyni fyrir að ljá okkur hugsjónir sínar og hugmyndir í frumeintakinu sem lög félagsins eru byggð á.
Það má vera að undirskriftasöfnunin á vefnum sé upphafið að þessum samtökum en þegar við í undirbúningsnefndinni sáum fólkið streyma inn á vinnufundina að segja hvert öðru sögur sínar og bjóða sig fram til að hjálpa sjálfu sér og samborgurum sínum, þá fann ég first fyrir alvöru eldmóð í brjósti mér. Þessir fundir voru mikilvægir okkur í undirbúningsnefndinni því við fengum andlit og raddir til að geyma í vitund okkar með nöfnunum og netföngunum. Ég vil að fundirnir haldi áfram minnst tvisvar í mánuði ef ekki einu sinni í viku. Félagsmenn fá tækifæri til að hitta hver annan í eigin persónu, finna fyrir samtakamættinum og finna hugmyndum sínum jarðveg eða viðnám ef svo ber undir.Á tímabilum hef ég fyllst vonleysi. Í fyrra varð augljóst að heimilið gæti orðið gjaldþrota en ég gat ekki séð hvaða mistök ég hefði gert í fjármálunum, nema þá að hafa asnast til að treysta bankanum mínum til 20 ára. Ekki meira en 60% lán á húsinu okkar, engar aðrar skuldir, skuldlaus 13 ára bíltík o.s.frv. Voru þetta fjárglæfrar af minni hálfu? Svipað er statt fyrir þúsundum landsmanna og nú vofir yfir þeim að heimilin verði gerð upptæk og gott betur. Ef ekki á þessu ári, þá því næsta eða næsta. Eigum við bara að horfa á eftir heimilum okkar, höfðustólnum sem við nurluðum saman, halda svo áfram að borga meira og meira og láta þetta gott heita? Eigum við að láta þessar stofnanir hrekja okkur úr landinu?
Ég hvet fólk til að kynna sér það hvernig bankar eru fjármagnaðir t.d. inn á vald.org áður en það svarar þessum spurningum.
Einu sinni treysti ég því að stjórnvöld vissu svona nokkurn vegin hvað þau voru að gera. Sonur minn treystir á Superman, Batman og Stálöndina. Hann mun vaxa upp úr því og sjá fyrr eða síðar að það eru engar ofurhetjur í lífi hans…. nema ein. Hún verður fyrir framan hann þegar hann rakar sig á morgnana. Ég segi því við ykkur, þið eruð einu ofurhetjurnar í ykkar lífi en saman getum við gert ofurmannlega hluti í tilveru hvors annars.
Nokkrir eru hér í framboði til stjórnar, þar á meðal ég. Ekki horfa á mig eða stjórnina sem bjargvætti ykkar. Við getum lítið án ykkar. Við þurfum að vinna þetta saman, ekki hvert í sínu horni. Við erum lýðurinn í lýðræðinu, það gerir þetta enginn fyrir okkur. Alvöru lýðræði er fyrirhöfn og það getur verið sársaukafullt en á endanum munum við uppskera.
Kærar þakkir,
Ólafur Garðarsson







