Troðfullt í Iðnó á líflegum fundi

  • Skoða sem PDF skjal

Góður rómur fór af fundinum í Iðnó fimmtudagskvöldið 17. sept. 2009. Þorvaldur Þorvaldsson og Aldís Baldvinsdóttir fluttu kjarnyrtar ræður og Einar Árnason hagfræðingur flutti erindi um óskynsemina í verðtryggingunni (ræður verða birtar hér fljótlega) . Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra mætti kjarkaður einn ráðherra og svaraði eftir bestu getu fjölmörgum fyrirspurnum. Björn Þorri Viktorsson svaraði fyrirspurnum er vörðuðu málsóknir og gang þeirra mála. Ólafur Arnarson tók til máls og byrjaði á að hrósa hæstvirtum viðskiptaráðherra fyrir að mæta og fékk Gylfi dynjandi lófaklapp sér til heiðurs frá gestum. Ólafur hefur verið óþreytandi málsvari heimilanna í pistlum sínum á pressan.is.

Fundarmenn tóku virkan þátt með klappi, flauti og hrópum og spurðu fjölmargra spurninga. Hagsmunasamtök heimilanna vilja þakka viðskiptaráðherra Gylfa Magnússyni fyrir komuna á fundinn. Við söknuðum Steingríms J Sigfússonar en fulltrúi hans lét vita á síðustu stundu að SJS kæmist ekki vegna anna á þingi.

HH þakkar einnig Einari Árnasyni, Ólafi Arnarsyni og Birni Þorra Viktorssyni fyrir komuna og frábæra frammistöðu á fundinum. Vilhjálmur Árnason stýrði fundi af röggsemi.

Lesa má ályktun fundarins hér.

Hér má svo finna upptökur frá fundinum frá Halldóri Sigurðssyni.