HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Um samtökin Viðburðir Stofnfundur Hagsmunasamtaka heimilanna

Stofnfundur Hagsmunasamtaka heimilanna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Háskólinn í Reykjavík Ofanleiti 2Fimmtdagskvöldið 15.1.2009 kl. 20.00 verður haldinn stofnfundur Hagsmunasamtaka heimilanna.  Fundurinn verður haldinn í sal 101 í Háskólanum í Reykjavík við Ofanleiti. Samtökin munu starfa sjálfstætt og án afskipta annara hagsmunaaðila eða stjórnmálaflokka.  Samtökunum er ætlað að vera málsvari heimilanna í þeirri umræðu sem nú er fyrir höndum, beita sér fyrir lagabreytingum og krefjast aðgerða vegna verðtryggra og erlendra lána.  Samtökin standa öllum opin.  Landsmenn eru hér með hvattir til að fylkja sér saman um hagsmuni heimilanna og mæta á fundinn.  Ekkert minna en velferð þjóðarinnar er í húfi.

F.h. undirbúningsnefndar
Arney Einarsdóttir
Ásta Rut Jónasdóttir
Ólafur Garðarsson
Vésteinn Gauti Hauksson
Þorvaldur Þorvaldsson
Þórður B. Sigurðsson
 

Gefðu þína umsögn

Þitt nafn:
Þitt nefang:
Efnislýsing:
Umsögn (nota má HTML tög hér):

Bankareikningur samtakanna

Sparisjóður Suður Þingeyinga - Laugum.

Samtökin óska eftir frjálsum framlögum til styrktar starfinu.

Reikningurinn er: 1110-26-5202
kt. 520209-2120

Hópmálsókn

Umsagnir