Ræða Bjarka Steingrímssonar varaformanns VR við Austurvöll

  • Skoða sem PDF skjal

Hinn mikli ítalski myndhöggvari Michaelangelo reyndi við 44 styttur á æviferli sínum,  en lauk aðeins við gerð 14 þeirra. Þau 30 verk sem hann lauk aldrei við, eru líka áhugaverðar, þær má sjá á hinum ýmsu söfnum á Ítalíu. Marmaraklumpar með fót, olnboga og þaðan af minna.  Allt annað var lokað inni. Mestu vonbrigði mannsins er að lifa og deyja og komast aldrei út úr sjálfum sér, og uppgötva aldrei hæfileika sína. Er þetta ekki góð lýsing á íslenskri þjóð í dag. Enginn efast um hæfileikana, en þeir eru allir lokaðir inni í sökkvandi marmaraklumpi.

Það er enginn leiðtogi sjáanlegur hér í dag sem er til í að koma okkur úr þessari sjálfheldu, það vita allir að til þess að geta leyst vandamál þurfa allar staðreyndir að liggja fyrir. Ríkisstjórnin í dag talar og talar og ekkert kemur frá þeim, ég endurtek einu sinni enn að það er ekki hægt að leysa vandamál heimilina fyrr en allar staðreyndir liggja fyrir. Það er rétt að að ríkistjórnin átti sig á því að árið 2009 sætta íslensk heimili sig ekki við pólitískt kjaftæði, heldur raunhæfar lausnir.

Það sem íslensk heimili eru að glíma við í dag, svo sem atvinnuleysi,  minnkandi kaupmátt, síhækkandi vöruverð. Og það alllra mikilvægasta. Verðtryggð húsnæðislán sem hækkað hafa um fjórðung á rúmu ári. Krónan okkar, sem fallið hefur gríðarlega með hörmulegum afleiðingum fyrir heimilin. Sem mörg hver eru t.d. með greiðsluseðla í höndunum  fyrir húsnæðis- og bílalánum í erlendri mynt og geta ekki greitt greiðsluseðlana.

Gerir ríkisstjórn, þeirra Jóhönnu og Steingríms, sér grein fyrir  hvaða vandamál bíða okkar eftir 20 ár?  Ég held ekki! Því samkvæmt skýrustu kreppurannsókn sem gerð var eftir að landbúnaðarkreppan skall á í miðríkjum bandaríkjanna 1980 – 1988. Með þeim afleiðingum að þúsundir  bændafjölskyldna misstu lífsviðurværi sitt. Rannsókn þessi fylgdi eftir 500 börnum árlega frá 1989 til dagsins í dag.  Til að fá langtímasýn á áhrif efnahagsþrenginga á fjölskyldur. Nú í dag, þegar þessi börn sem urðu fyrir barðinu á fyrrnefndum efnahagsþrengingum, eru orðin þrítug, standa þau verr að vígi heldur en jafnaldrar þeirra af sama svæði sem ekki lentu í efnahagsþrengingum. Ekki bara andlega, heldur bæði menntunarlega og félagslega.  Vísindamenn telja það vera í beinu samhengi við vítahringinn sem fór af stað hjá fjölskyldum þeirra.

Ef við heimfærum þessa rannsókn yfir til Íslands, er trúlegt að fáir geri sér grein fyrir þeim afleiðingum sem okkar bíða þegar sambærilegar efnahagsþrengingar leggjast á heila þjóð í stað agnarsmás parts Bandaríkjanna. Ég held hreint út sagt að ríkisstjórn landsins skilji ekki hvernig fjölskyldum landsins líður. Því einu svörin sem við fáum frá Jóhönnu forsætisráðherra er að allt saman leysist við inngöngu í Evrópusambandið, án þess að frekari skýringar séu gefnar.

Staðreyndin er nefnilega sú,  að það er til lögmál sem heitir lögmál aðdráttaraflsins, sem virkar þannig að við fáum það sem við hugsum um.  Ef við höfum bara vandamál til að hugsa um þá fáum við bara vandamál, við þurfum að fá lausnir. Það er rétt að segja það aftur að ekki er hægt að finna lausnir fyrr en við vitum hvaða vandamál við glímum við.

Skjaldborg fyrir hverja, já skjaldborg fyrir hverja? Er staðan sú að það var eingöngu slegin skjaldborg utan um fjármagagnseigendur? Hvenær kemur að okkur, fjölskyldum landsins? Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera áður en fjöldi atvinnulausra fer yfir 20.000 einstaklinga? Hvað ætlar háttvirt ríkisstjórn að gera varðandi vertrygginguna?  Heimilin þurfa að fá svör. Eins er ekki nóg að drepa niður hugmyndir annara um 20% niðurfellingu skulda án þess, án þess að koma með eitthvað annað í staðinn.

Finnst ríkisstjórninni það ásættanlegt að einn helsti vaxtabroddur í skipaflutningum frá landinu, sé í formi búslóðafluttninga? Hávaxta stefna ríkisstjórnarinnar stefnir fyrirtækjum í þrot. Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera? Það er ekki nóg að tala og tala eins og fjarmálaráðherra gerir og segja einungis að staðan sé grafalvarleg. Heimilin gera þá kröfu að forsætis- og fjármálaráðherra komi með  lausnir fyrir heimilin. Ella viðurkenni vanmátt sinn og algert getuleysi fyrir Þjóð sinni.