Sigrún Elsa tala máli heimilanna og jafnaðarmanna
Fín ræða hjá Sigrúnu Elsu og í takti við það sem hún hefur barist fyrir - og allir jafnaðarmenn eru að berjast fyrir. Eins og fram kemur þá samþykkti Landsfundur Samfylkingarinnar hógværa tillögu um "leiðréttingu" á yfirskoti vísitölunnar - og sama gerði Landsfundur VG. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru ekki alveg búnir að finna taktinn - og sumir þeirra virðast í einhverjum "hanaslag" við Framsóknarflokkinn og enn í kosningabaráttu með slagorðum. Sigrún Elsa berst fyrir þeim sjónarmiðum sem Hagsmunasamtök Heimilanna voru stofnuð fyrir - að þessu leyti og þó hún sé borgarfulltrúi Samfylkingarinnar þá ber hún auðvitað ekki beina ábyrgð á því úrræðaleysi - eða aðgerðaleysi í málefnum lántakenda sem gagnrýnt hefur verið. Sigrún Elsa hefur einnig haldið uppi málefnalegri gagnrýni á ASÍ og lífeyrissjóðaforystuna - og þannig talar hún máli "jafnaðarmanna" í öllum flokkum og máli heimilanna í landinu. Flott Sigrún Elsa. Mættum við heyra í fleirum sem ekki láta Flokksvaldið beygja sig.







