Varð alveg ringlaður
Ég var á fundinum og hlustaði á ræðu Sigrúnar Elsu og var sammála all flestu sem hún sagði en þar kom reyndar ekkert nýtt fram.
Ég og við sem þarna vorum saman gengum burt þegar Sigrún var búin að tala í nokkra hringi um sitt eigið ágæti og síðan ágæti ríkisstjórnarinnar.
Fólk kom saman þennan dag á Austurvelli því það er úrkula vonar um að ríkisstjórnin ætli að fara að gera eitthvað raunverulegt.
"Skjaldborgin" um heimilin sem ekki einu sinni er tjaldborg úr samskonar klæði og notað var í nýju fötin keisarans, hefur hvergi sést. Gengið fellur, lánin hækka, fasteignir lækka, vinnan minnkar, launin lækka. Við erum öll að taka á okkur gífurlegar byrðar.
Við komum saman vegna þess að það er SIÐFERÐISLEGA RANGT hvernig tekið er á málum.
Þar sem þetta var fundur þá tek ég ræðu Sigrúnar sem orðum fundargests sem fékk tækifæri til að tjá sig en ég er samt ekkert rosalega ánægður eða sammála henni í öllu.
Við erum þó kannski sammála um eitt:
Flestir sem eru á launum sem talsmenn alþýðu og verkalýðs eru enganvegin að standa sig í starfi.
Heimilin og fyrirtækin eru komin á nasirnar en það heyrist ekki múkk í verkalýðshreyfingunni. Enda ekki skrítið miðað við launin sem þetta lið tekur sér.







