Góður dagur á Austurvelli

  • Skoða sem PDF skjal

Samstöðu fundurinn á Austurvelli verður lengi í minnum hafður fyrir að vera fyrsti útifundur Hagsmunasamtaka heimilanna. Tíminn mun leiða í ljós hvort hér er um vatnaskil í baráttu samtakanna að ræða en umfjöllun er almennt mjög jákvæð um framtakið. EGÓ með Bubba í frarbroddi léku af fingrum fram fyrir upphaf fundarins.

Þorvaldur Þorvaldsson stýrði fundinum af röggsemi og hóf fundinn með stuttum formála. Bjarki Steingrímsson varaformaður V.R., tók fyrstur ræðumanna til máls og fjallaði um nauðsyn framgangs réttlætisins. Guðrún Dadda Ásmundardóttir tók síðan við og ræddi um áhrif atvinnuleysis og aukinar greiðslubyrðar á heimilin með persónulegum og hjartnæmum hætti. Aðeins forhertir láta ekki snertast af hennar rödd.

EGÓ lék nú nokkur lög og Bubbi varpaði fram nokkrum persónulegum skoðunum á ástandinu og auglýsti m.a. eftir VG málaliðum frá því í mótmælunum vetur.

Í þessu sambandi skal því haldið til haga að málaliðar VG sem og málaliðar allra flokka eru virkir innan Hagsmunasamtaka heimilanna. HH eru þverpólitísk samtök og opin öllum sem láta sig heimilin varða.

Þá tók Ólafur Garðarsson til máls og skammaðist yfir stefnu fjármálakerfisins og stjórnvalda og uppskar góðan róm viðstaddra. Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar rak lestina og tók afgerandi afstöðu gegn ríkjandi stefnu Samfylkingarinnar í málefnum heimilannaReyndar má geta þess að skoðanir Sigrúnar eru í samhljómi við ályktun landsfundar SF og því réttara að segja að afstaða hennar sé gegn ríkjandi stefnu forystu SF þegar þetta er skrifað.

Eftirfarandi eru hlekkir á fréttir og umfjöllun um viðburðinn.

Pressan, MBL,    Vísir - Stöð 2,   Eyjan,   Halldór Sigurðsson Þórður Björn Sigurðsson,  Jóna Ingibjörg JónsdóttirRÚV,