Dags: 19. mars 2009.
Staður: Háskólinn í Reykjavík
Fundarstjóri, Héðinn Björnsson samþykktur af öllum fundarmönnum.
Héðinn setti fundinn og bauð formanni að fara yfir skýrslu stjórnar.
1. Skýrsla stjórnar (ÞBS).
Þórður B. Sigurðsson formaður fór yfir tilurð, stofnun, samþykktir og þ.m.t. hlutverk og helstu verkefni samtakanna frá stofndegi og komið inn á framtíðina).
Tillaga borin upp af fundarstjóra v. tillögu þar um að breytt verði út af fyrri dagskrá og
Tryggva Þór Herbertssyni boðið að flytja framsögu. Tillagan var samþykkt.
Tryggvi Þór Herbertsson flutti framsögu um efnahagshrunið og tillögur sínar um 20%
leiðréttingu/niðurfærslu á öllum lánum í landinu og skapaðist nokkur umræða um tillögur hans.
2. Reikningar félagsins
Þar sem félagið var stofnað á þessu ári og starfsár og reikningsár var ekki þörf á að fara yfir reikninga félagsins en Friðrik upplýsti um það að nú hefði verið stofnaður reikningur í nafni félagsins í Sparisjóði Suður Þingeyinga.
3. Lagabreytingar
Tillaga hafði komið fram um að bæta inn lið í gr. 6 lið nr. 7 (á eftir lið um kosningu skoðunarmanna) og var hún samþykkt.
4. Kosning stjórnar og 5. Kosning varamenn
Þeir sem buðu sig fram til stjórnar fluttu stuttar framsögur (þó ekki í þessari röð).
Arney Einarsdóttir
Axel P. Gylfason
Friðrik Ó Friðriksson
Guðrún Dadda Ásmundsdóttir
Haraldur Haraldsson
Hólmsteinn Brekkan
Marinó G. Njálsson
Margrét Ákadóttir
Vésteinn Gauti Hauksson
Vilhjálmur Árnason
Þorvaldur Þorvaldsson
Þórður B. Sigurðsson
Fram fór rafræn kosning og var niðurstaðan eftirfarandi í ljósi fjölda atkvæða:
| Þórður B. Sigursson | Stjórn |
| Arney Einarsdóttir | Stjórn |
| Marinó G. Njálsson | Stjórn |
| Friðrik Ó Friðriksson | Stjórn |
| Ólafur Garðarsson | Stjórn |
| Vésteinn Gauti Hauksson | Stjórn |
| Þorvaldur Þorvaldsson | Stjórn |
| Guðrún Dadda Ásmundardóttir | Varastjórn |
| Axel P. Gylfason | Varastjórn |
| Vilhjámur Árnason | Varastjórn |
| Haraldur Haraldsson | Varastjórn |
| Hólmsteinn Brekkan | Varastjórn |
| Andrea Jóhanna Ólafsdóttir | Varastjórn |
| Margrét Ákadóttir | Varastjórn |
5. Kosning skoðunarmanna
Sveinlaug Sigurðardóttir og Sólveig Sigurgeirsdóttir buðu sig fram og var það samþykkt af fundarmönnum.
6. Ákvörðun um árgjald/félagsjöld
Friðrik kynnti tillögu stjórnar um valkvæð félagsjöld fyrir árið 2009 útskýrði hugmyndina og Þórður bætti upplýsingum um hugmyndir fv. stjórnar um að t.d. nota slíkt fé til dæmis með því að kalla eftir tillögum flokkanna fyrir kosningar fyrir heimilin og auglýsa síðan tillögur þeirra og láta þá sem verða kosnir standa við orð sín.
Tillagan var samþykkt.
6. Önnur mál
Farið yfir tillögur stjórnar um ályktun aðalfundar og var niðurstaðan að tillögurnar tvær væru samþættaðar af stjórn samtakanna.
Tillögu beint til nýkjörinnar stjórnar að sækja um styrk til félagsmálaráðuneytisins fyrir samtökin.





















