Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna verður haldinn fimmtudaginn 19.
mars næstkomandi í HÁSKÓLA REYKJAVÍKUR.
Fundurinn hefst stundvíslega klukkan 19:30.
Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar félagsins
3. Lagabreytingar
4. Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanna.
5. Önnur mál
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna leggur til að félagsgjöld ársins 2009 verði kr. 1.200,- sem þýðir breytingu á 12.gr. Samþykkta félagsins (Samþykktir félagsins má finna á heimasíðu félagsins www.heimilin.is)
Aðrar tillögur að breytingum á samþykktum félagsins þurfa að berast í síðasta lagi sunnudaginn 15. mars á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Þeir sem bjóða sig fram til stjórnar (einstaklingsframboð) þurfa einnig að tilkynna um framboð sitt í síðasta lagi sunnudaginn 15. mars með tölvupósti á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Þeir sem bjóða sig fram til stjórnar munu flytja örstutta framsögu áður en gengið verður til kongingar stjórnar á fundinum.
Athygli er vakin á því aðeins félagsmenn hafa atkvæðisrétt.
Samþykkir félagsins liggja fyrir á heimasíðu samtakanna. Tillögur um
breytingar á samþykktum félagsins þurfa að berast á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
fyrir 16. mars nk. Tillögur verða birtar á vefnum eftir því sem þær berast
fram að aðalfundi.
http://www.heimilin.is/samthykkt
Umræður um samþykktir fara fram á umræðuvef samtakanna hér:
http://umraeda.heimilin.is
Skráðir félagsmenn í Hagsmunasamtökum heimilanna hafa rétt á að sitja
aðalfund félagsins og kjósa stjórn. Hægt er að skrá sig í samtökin á
heimasíðu samtakanna hér:
http://skraning.heimilin.is
En einnig verður hægt að skrá sig í samtökin við innganginn að fundinum.
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna







