Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna var þriðjudagskvöldið 27. apríl 2010
Fundurinn var góður en teygðist helst til mikið í annan endann. Kjörin var ný stjórn og gerðar voru breytingar á samþykktum. Sjórn var falið að útfæra kröfur samtakanna nánar. Baldur Pétursson flutti erindi um áhættustjórnun og endurreisn. Marinó G Njálsson kynnti tillögu sína um lausnarleið.
Ný aðalstjórn er sem hér segir:
Andrea Jóhanna Ólafsdóttir
Arinbjörn Sigurgeirsson
Friðrik Ó Friðriksson
Marinó G Njálsson
Ólafur Garðarsson
Vilhjálmur Bjarnason
Þorvaldur Þorvaldsson







Tólfti og síðasti samstarfsfundur HH og NÍ fór vel þrátt fyrir mikla snjókomu. Gunnar Skúli frá Attac flutti ræðu, Lúðvík fór með kröfur NÍ, Theódór flutti ræðu fyrir hönd Greiðsluverkfallsstjórnar og Aðalsteinn Baldursson frá Stéttarfélaginu Framsýn kom í heimsókn frá Húsavík og þrumaði yfir vellinum með miklum norðlenskum krafti.
Á milli 800 og 1000 manns sóttu kröfu/samstöðufund HH og NÍ laugard. 13. febrúar 2010. Ræðumenn voru Ólafur Garðarsson og Ásta Hafberg, fundarstjóri Guðrún Dadda Ásmundardóttir. Lúvík Lúðvíksson NÍ hélt einnig stutta tölu. Í lokin röppuðu Móri og Messías. Þess má geta að lagið þeirra var samið 2001 en smellpassar við núverandi ástand. Sjá má og heyra ræðurnar og í listamönnunum á 














