Hugsanleg úrræði

  • Skoða sem PDF skjal
Ágæti viðtakandi. Ég hef verið að velta fyrir mér úrræðum fyrir almenning til lausnar á greiðsluvanda fólks. Mínar niðurstöður eru þessar. 1. Að verðbætur verði afnumdar af öllum fjárskuldbindingum eins fljótt og hægt er, eigi síðar en innan 6 mánaða. 2. Að lánstími verði breytilegur að vali lántakanda að hámarki í 70 ár. 3. Að vextir á íbúðar lánum fari ekki yfir ca 7%. 4. Að innlánsvextir verði ca 5%. 5. Að gengis tryggð íbúðarlán verði með sama hætti. 6. Að fjölskildum verði eftir því sem unnt er að halda eignum sínum og hjá þeim sem mist hafa eignir vegna greiðsluerfiðleika verði eftir því sem hægt er gert kleift að eignast húsnæði aftur. Mín skoðun er sú að það sé rétt hjá samtökunum að niðurfelling sé besti kosturinn, en að oflangt sé liðið frá því að vandræðin byrjuðu, niðufelling hefði þurft að koma nánast strax eftir hrunið til að virka sem best. Mínar tillögur miðast eingöngu við íbúðarlán.