Erlend lán og verðtryggð lán
Þar sem verið er að tala um reglugerðir og ábyrgð lántakanda þá vil ég fá lög um það, þar sem við almenningur tökum lán á þeim forsendum sem eru þá og þegar að við höfum ekki yfirsýn eða stjórnum áhrifum banka, stjórnvalda, auðmanna, og alla þá sem tengjast peningum og lánum þá vil ég að sett verði inn ný lög um að það er sett inn að EF stjórnvöld telja að gengisvísitalan eigi að miða t.d við 145 stig og uppað því gengi borgum við eða tökum þá áhættu en ef það fer uppfyrir þá lendir það á lánastofnun eða lánveitandanum.
EF við erum með verðtryggð lán og markmið seðlabankans eru 2,5% þá borgum við aldrei meira en 2 sinnum það eða 5% það er okkar áhætta og svo taka lánveitendur á sig hinn skellinn sem aldrei verður ef þetta yrði sett í lög þá myndi ekkert heita sem er verðtrygging því það myndi bara detta út við svona lög.
Og fjármagnseigendur myndu ekki græða eins mikið og fjármagnsskuldarar ekki tapa eins mikið og staðan myndi jafnast mikið fyrr og einnig að almenningur tæki ekki á sig skell eins og var í október þetta myndi aldrei gerast aftur!!!!!







