HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Um samtökin Tillögur samtakanna

Frysting lána, þvílíkur hetjuskapur hjá bankanum eða þannig?

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Ég neyddist til að láta frysta íbúðalánið hjá mér því ég missti vinnuna og þessi krimma kb banki lét mig skila inn allskonar gögnum sem ég gerði. Svo beið ég í 2 vikur og það var hringt í mig til að koma og ganga frá frystingunni á láninu. Og viti menn, ég sótti um frystingu í ár en þeir gátu ekki boðið mér að frysta lánið nema í 5 mánuði, og hver var fórnarkostnaðurinn fyrir mig, jú eftir þessa 5 mánuði þarf ég að byrja að borga 82 þús af láninu á mánuði í staðinn fyrir 72 þús áður. Semsagt frysting í skitna 5 mánuði og ég þarf að borga 10 þús krónur aukalega hver mánaðarmót næstu 40 árin. Og ekki nóg með það heldur er höfuðstóllinn á láninu búinn að hækka um 3 milljónir á rúmlega 2 árum!! Ef þetta er ekki þjófnaður af verstu sort þá veit ég ekki hvað, enda svoleiðis sauð á mér þegar ég labbaði útúr þessum skíta glæpa banka. Held ég hefði allveg eins getað tekið þetta lán hjá rússnessku mafíunni, held að jafnvel þeir myndu ekki ná að toppa þetta botnlausa vaxta, gróða ógeðis okur sem íslensku bankarnir bjóða uppá.
 

Gefðu þína umsögn

Þitt nafn:
Þitt nefang:
Efnislýsing:
Umsögn (nota má HTML tög hér):

Bankareikningur samtakanna

Sparisjóður Suður Þingeyinga - Laugum.

Samtökin óska eftir frjálsum framlögum til styrktar starfinu.

Reikningurinn er: 1110-26-5202
kt. 520209-2120

Hópmálsókn

Umsagnir