Ályktanir - samþykktir ofl.

Í tilefni 1. maí

  • Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna skora á verkalýðsöfl í landinu að hugsa nýjar leiðir í yfirstandandi kjarasamningaviðræðum.

Það er tillaga okkar að meðal krafna í kjarasamningsviðræðum sé  að veðlán heimilanna verði leiðrétt með réttmætum, sanngjörnum og almennum hætti. Enda er það er algerlega ljóst öllu sanngjörnu fólki að þegar verðbætur á lán rjúka upp án nokkurra takmarkana þá er um óréttmæta eignatilfærslu að ræða, og einungis eðlilegt að tryggja að á þeim sé fyrirfram skilgreint þak eins og samtökin hafa áður lagt til.

Lesa meira...

Ný stjórn HH

  • Skoða sem PDF skjal

Ný stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna var kjörin á aðalfundi 31. mars 2011. Stjórnin skiptir með sér verkum og á fundi nýrrar stjórnar 6. mars var Andrea J. Ólafsdóttir kjörin formaður samtakanna og Elías Pétursson varaformaður. Andrea hefur starfað með samtökunum frá því þau voru stofnuð árið 2009 og sinnti hlutverki gjaldkera á síðasta starfsári ásamt aðkomu að ýmsum öðrum verkefnum stjórnar, en Elías kemur nýr að stjórn samtakanna ásamt þremur öðrum í aðalstjórn.

Lesa meira...

Málskostnaðartryggingar lántaka

  • Skoða sem PDF skjal

Áríðandi tilkynning vegna málskostnaðartryggingar lántaka

Hagsmunasamtök heimilanna vilja árétta við þá sem ætla í málaferli vegna húsnæðislána sinna, að málskostnaðartrygging er oft til staðar í heimilistryggingum. Í mörgum tilvikum ættu þessar tryggingar að ná til málaferla vegna húsnæðislána heimilanna, þótt skilmálar geti verið mismunandi. Rétt er að fólk athugi slíkt og leiti réttar síns, hvort sem um ræðir gengisbundin lán eða verðtryggð.

Lesa meira...

Ályktun um kjarasamningaviðræður í apríl 2011

  • Skoða sem PDF skjal

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna tekur undir málflutning formanna VLFA og Framsýnar varðandi kjarasamninga-viðræður aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda.

Lesa meira...

Ályktun aðalfundar HH 2011

  • Skoða sem PDF skjal

Ályktun um húsnæðismál, afnám verðtryggingar og leiðréttingar lána
Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 31. mars 2011

Undanfarna áratugi hafa hafa heimilin í landinu liðið fyrir að fjármögnun húsnæðis hefur verið í nær stöðugu uppnámi vegna ofurvaxta og verðtrygginar sem margfalda húsnæðiskostnað almennings. Húsnæði er grunnþörf sem samfélagið verður að tryggja aðgang allra að. Skortur er á félagslegum úrræðum í húsnæðismálum og framboð leiguhúsnæðis er takmarkað á sumum svæðum.

Lesa meira...

Yfirlýsing vegna endurútreiknings lána

  • Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna telja rétt að vara almenning við því að undirrita nýja samninga byggða á endurútreikningum sem varða gengisbundin lán og afturvirka vexti af þeim. Þau lög sem viðkomandi endurútreikningar byggja á (151/2010) stríða beinlínis gegn neytendarétti Evrópu eins og kemur fram í umsögn Umboðsmanns skuldara um lögin, en íslendingar hafa innleitt neytendavernd samkvæmt Evrópurétti.  Þá veitir Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands þegnum landsins grundvallar vernd gegn aðför að eignarrétti þeirra, sem og afturvirkrar skattheimtu og íþyngjandi álaga hvers konar.

Lesa meira...

Neysluviðmið fyrir íslensk heimili

  • Skoða sem PDF skjal

Ályktun Hagsmunasamtaka heimilanna um skýrslu Velferðaráðuneytisins: Neysluviðmið fyrir íslensk heimili.

Að mati Hagsmunasamtaka heimilanna ber að líta útgáfu skýrslu velferðarráðuneytisins  jákvæðum augum.  Mikilvægt er þó að hafa í huga að þau neysluviðmið sem kynnt eru í skýrslunni endurspegla ekki raunframfærslukostnað eða lágmarks framfærslukostnað heldur rauntölur um neyslu fólks á Íslandi seinustu ár.

Lesa meira...

Yfirlýsing stjórnar HH vegna dóms um lánaskuldir stofnfjáreigenda

  • Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna gleðjast yfir nýföllnum dómum í Héraðsdómi Reykjavíkur sem dregur fjármálastofnanir til ábyrgðar á markaðsmisnotkun og fyrir ranga upplýsingagjöf til viðskiptavina/stofnfjáreigenda sinna, enda byggir niðurstaða þeirra á því að lántakendur voru blekktir.

Lesa meira...

Áskorun til forystumanna launþegahreyfinga landsmanna

  • Skoða sem PDF skjal

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) beinir þeim orðum til verkalýðsforystunnar að leiðrétting lána og afnám verðtryggingar er sú kjarabót sem bróðurpartur íslenskrar alþýðu kallar eftir.  Í yfirstandandi kjarasamningaviðræðum ber verkalýðsforystunni skylda til að láta sig þetta málefni varða ef henni er raunverulega annt um hagsmuni sinna félagsmanna.

Lesa meira...

Ályktun félagsfundar HH 15. jan. 2011

  • Skoða sem PDF skjal

Almennur félagsfundur Hagsmunasamtaka heimilanna haldinn í Reykjavík 15. Janúar 2011 samþykkir eftirfarandi ályktun.

 

Fundurinn krefst þess að fjárskuldbindingar almennings verði leiðréttar fyrir afleiðingum banka og gjaldeyrishruns 2008.

 

Staða lántaka verði þannig jöfnuð gagnvart innstæðueigendum sem fengu hlut sinn fyrirhafnarlaust bættan með ákvörðun stjórnvalda.

 

Nauðungarsölur og afborganir lána verði tafarlaust stöðvaðar og ekki heimilaðar að nýju fyrir en hlutur lántaka hefur verið réttur.

 

Þá hvetur fundurinn alla til að mæta á Austurvöll eða á torgum byggðarlaga sinna mánudaginn 17. janúar 2011 kl. 16:30 til að tjá hug sinn gagnvart stjórnarfarinu og ástandinu í landinu.

 

 

Erum við sátt?

  • Skoða sem PDF skjal

Aðgerðarpakkar ríkisstjórnarinnar í skuldavanda heimilanna voru hannaðir af fjármálastofnunum fyrir fjármálastofnanir með þrönga hagsmuni fjármálafyrirtækja og ríkissjóðs til skamms tíma að leiðarljósi. Þó mörg úrræði hafi verið sett fram sem “skjaldborg fyrir heimilin” einkennast þau öll af firringu á ábyrgð og kostnaði hrunsins er áfram fleytt yfir á varnarlaus heimilin. Það sama á við um meintar samningaviðræður fyrir jól um málið, sem var í reynd undirritun ríkisstjórnarinnar á afarkostum fjármálastofnana.

Lesa meira...

Blekkingar á blekkingar ofan

  • Skoða sem PDF skjal

Fjölmiðlar hafa að undanförnu fjallað um niðurstöðu skýrslu franska rannsóknarfyrirtækisins Cofisys um rekstur Glitnis og Landsbankans í aðdraganda bankahrunsins.  Fram hefur komið að Landsbankinn hafi beitt blekkingum og að Glitnir hafi starfað í skjóli falskra reikninga.  Kjarninn í málflutningi Hagsmunasamtaka heimilanna frá stofnun þeirra hefur meðal annars grundvallast á þeirri afstöðu lán almennings beri að leiðrétta vegna þeirra ranginda sem lánveitendur hafi beitt viðskiptavini sína.

Lesa meira...

Ályktun vegna viljayfirlýsingar

  • Skoða sem PDF skjal

Ályktun stjórnar Hagsmunasamtaka heimilanna vegna viljayfirlýsingu um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna vill koma því á framfæri að samtökin eru ekki aðili að ,,Viljayfirlýsingu um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna“ sem kynnt var 3. desember 2010 af hálfu stjórnvalda. Stjórn HH ítrekar kröfur samtakanna um almenna leiðréttingu lána vegna þess forsendubrests sem varð og hafnar kynntri aðferðafræði við úrlausn skuldavandans.

Lesa meira...

Hvatningarpakki heimilanna

  • Skoða sem PDF skjal

HVATNINGARPAKKI HEIMILANNA
Hagsmunasamtök heimilanna lögðu fram tillögur sínar um efnahagsaðgerð til leiðréttingar á skuldum heimilanna strax í janúar 2009. Núverandi tillögur að þjóðarsátt eru byggðar á þeim tillögum. Í grunninn hafa tillögurnar ekki breyst vegna þess að þær hafa staðist tímans tönn og í reynd hefur sýnt sig að varnaðarorð HH áttu við rök að styðjast. Megin markmið aðgerða eru tvö: Upprisa efnahagslífs og réttlæti/sanngirni.

Lesa meira...

Stundar stjórn HH lýðskrum?

  • Skoða sem PDF skjal

Af gefnu tilefni vill stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna koma eftirfarandi á framfæri.

Yfirlýsingu og ásetning samtakanna um lýðræðisleg vinnubrögð má ekki skilja sem svo að stjórn samtakanna sé yfir gagnrýni hafin. Samtökin geta ekki tekið ábyrgð á slíkri túlkun samþykkta HH. Samþykktirnar og vísanir í þær eru gerðar af einlægum vilja til góðra verka fyrir samfélagið. Ef stjórnarmeðlimir hafa með orðum sínum gefið tilefni til annarrar túlkunar en liggur í orðanna hljóðan, biðjum við þá sem hlut eiga að máli að vísa á tilfellin, annaðhvort með skeyti á netfang samtakanna Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða opinberlega eftir efni og aðstæðum. Nákvæmni og marktækur rökstuðningur eru mikilvæg í þessu sambandi.

Um Hagsmunasamtök heimilanna

Fleiri greinar...