HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Um samtökin Samþykktir samtakanna

Samþykktir Hagsamunasamtaka heimilanna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
1. gr. Heiti, varnarþing og félagssvæði
  • Samtökin heita Hagsmunasamtök heimilanna, skammstafað HH.  
  • Heimili samtakanna, skrifstofa og varnarþing er í Reykjavík.
  • Félagssvæði samtakanna nær til alls landsins.

 

2. gr. Forsendur

  • Samtökin eru frjáls og óháð stjórnmálaflokkum og öðrum hagsmunaaðilum.
  • Samtökin starfa á lýðræðislegum grunni með það að leiðarljósi að félagar hafi jafnan rétt til  áhrifa.

 

3. gr. Tilgangur

  • Samtökin eru vettvangur fyrir fólkið í landinu til að  að verja og bæta hagsmuni heimilanna í landinu.
  • Samtökin eru málsvari og talsmaður félagsmanna í umræðu um hagsmuni heimilanna til skemmri og lengri tíma.

 

4. gr. Markmið

  • Markmið samtakanna er að beita sér fyrir lagabreytingum og / eða lagasetningum til varnar og hagsbóta fyrir  heimilin í landinu.
  • Markmið samtakanna er að stuðla að leiðréttingu verðtryggðra og gengistryggðra húsnæðislána heimilanna.
  • Samtökin vinna að  tilgangi sínum og markmiðum eftir öllum lögmætum leiðum. og með réttmætum samtakamætti.

 

5. gr. Aðild og úrsögn

  • Aðld að samtökunum er einstaklingsbundin og miðast við að lágmarki 18 ára aldur.  
  • Umsókn um aðild skal vera skrifleg, t.d. með rafrænni skráningu á heimasíðu samtakanna, fyllt út á félagsfundi og/eða með öðrum skriflegum sannanlegum hætti. Sama á við um úrsögn úr samtökunum.

 

6. gr. Aðalfundur

  • Starfsár og reikningsár félagsins er almanaksárið.
  • Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum samtakanna. Aðalfund skal halda fyrir lok maímánaðar ár hvert. Rétt til setu á aðalfundi eiga allir félagsmenn samtakanna. Boða skal til aðalfundar með tölvupósti og opinberri tilkynningu á heimasíðu samtakanna, www.heimilin.is, með minnst 14 daga fyrirvara. Fundargögn skulu vera aðgengileg félagsmönnum minnst 3 dögum fyrir fund. Stjórn er heimilt að verða við óskum félagsmanna um fundarboðun með pósti greiði viðkomandi félagsmaður sendingarkostnað sem hlýst af fundarboðun.
     Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:
  1. Skýrsla stjórnar
  2. Reikningar félagsins
  3. Lagabreytingar
  4. Kosning stjórnar
  5. Kosning varamenn
  6. Kosning skoðunarmanna
  7. Önnur mál
  • Aðalfundur telst löglegur sé rétt til hans boðað. Stjórn er heimilt að bjóða öðrum áheyrn með fundarsetu.
  • Á aðalfundi skal stjórn gefa skýrslu ársins um starf og árangur samtakanna.
  • Heimilt er að halda fundi með rafrænum hætti. Þá er heimilt að atkvæðagreiðsla fari fram með rafrænum hætti.
  • Stjórn er heimilt að boða til aukaaðalfundar ef fyrir liggja brýn málefni sem ekki geta beðið reglulegs aðalfundar, eða ef 20% félagsmanna fer fram á slíka boðun með tillögu um dagskrá.

 

7. gr. Almennir félagsfundir og vinnufundir

  • Félagsfundir skulu haldnir svo oft sem stjórn samtakanna telur ástæðu til. Boða skal til félagsfundar með að lágmarki þriggja daga fyrirvara.
  • Stjórn skal ætíð boða til félagsfundar innan  14 daga komi fram ósk um það frá meirihluta stjórnarmanna eða 20% félagsmanna.
  • Vinnufundir skulu kynntir á heimasíðu félagsins.  

 

8. gr. Afgreiðsla mála

  • Á aðalfundum og öðrum félagsfundum ræður einfaldur meirihluti greiddra atkvæða nema annað sé tekið fram í samþykktum þessum. Komi fram ósk um skriflega atkvæðagreiðslu skal orðið við því.
  • Heimilt er að atkvæðagreiðsla fari fram með rafrænum hætti. Þá er heimilt að hafa opið fyrir atkvæðagreiðslu í allt að þrjá daga frá lokum fundar.
  • Heimilt er stjórn að efna til atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna um málefni án þess að fyrst hafi verið boðað til fundar nema samþykktir kveði á um annað.

 

9. gr. Stjórn

  • Stjórn samtakanna skal skipuð sjö mönnum og sjö varamönnum sem kjörnir skulu á aðalfundi samtakanna. . Stjórnin kýs sér formann, varaformann, ritara og gjaldkera á fyrsta stjórnarfundi að loknum aðalfundi.   
  • Stjórnarmaður sem setið hefur full fimm kjörtímabil telst hafa lokið stjórnarsetu sinni fyrir samtökin og getur ekki verið kjörinn aftur í stjórn. Ákvæðið gildir ekki um kjörtímabil varamanna.
  • tjórnarstörf eru ólaunuð.
  • Stjórnin skal koma saman til fundar a.m.k. mánaðarlega og skal hún halda fundargerðir.Að öðru leyti kveður stjórnarformaður stjórnina til fundar, þegar honum þykir þörf og skylt er honum að boða til funda í stjórninni þegar einn stjórnarmaður óskar þess.

 

10. gr. Verkefni stjórnar

  • Stjórn samtakanna fer með æðsta vald í málefnum þeirra milli aðalfunda. Hún undirbýr aðalfund og aðra félagsfundi. Formaður boðar til stjórnarfunda með sannanlegum hætti. Stjórnarfundir eru lögmætir ef mættur er meirihluti stjórnarmanna.
  • Við afgreiðslu mála á stjórnarfundum fer hver stjórnarmaður með eitt atkvæði og ræður einfaldur meirihluti atkvæða. Séu atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns fundarins. Varamenn hafa aðeins tillögurétt á stjórnarfundum nema þeir leysi af stjórnarmann.
  • Stjórn semur stefnuskrá hvers starfsárs.  Stjórn skal hafa yfirumsjón með daglegri starfsemi samtakanna eða ræður sérstakan aðila til þess og til sértækra verkefna.
  • Stjórn setur nefndum samtakanna reglur þar sem fram kemur hlutverk nefndanna.

 

11. gr. Staðbundnar deildir og nefndir

  • Félagsmönnum er heimilt að stofna staðbundnar deildir sem starfa sjálfstætt á ákveðnum svæðum landsins, en þó eftir samþykktum og stefnuskrá samtakanna.
  • Innan samtakanna starfa málefnanefndir sem annast upplýsingaöflun, greiningu, úrvinnslu og málefnauppbyggingu einstakra málefna samkvæmt stefnuskrá.
  • Stjórn skipar formenn nefnda.
  • Stjórn hefur heimild til að skipta út formönnum nefnda ef þurfa þykir.
  • Aðeins félagsmenn geta verið nefndarmenn. Nefndarmönnum er þó heimilt að leita sér sérfræðiaðstoðar og álits utan samtakanna.
  • Nefndarstörf eru ólaunuð.

 

12. gr. Fjármál

  • Stjórn ber fram tillögur um félagsgjöld til samþykktar á aðalfundi.  
  • Gjaldkera er heimilt með fyrirfram samþykki stjórnar að endurgreiða stjórnarmönnum eða nefndarmönnum  sannanlega útlagðan kostnað vegna sérstakra verkefna í þágu félagsins.
  • Stjórn er heimilt að stofna til kostnaðar innan fjárhagsramma samtakanna vegna dagslegs reksturs, fundarhalda og aðkeyptrar sérfræðiaðstoðar.
  • Samtökunum er heimilt að taka við frjálsum fjárframlögum frá öðrum en stjórnmálaflokkum/hreyfingum og fjármálastofnunum. Fjárframlög veita fjárveitanda ekki rétt til ítaka eða áhrifa í samtökunum. Samtökunum er heimilt að sækja um styrki í opinbera sjóði
  • Berist samtökunum frjáls fjárframlög er stjórn heimilt, innan fjárframlaga, að stofna til kostnaðar vegna húsnæðisleigu vegna aðalfunda og almennra félagsfunda og aðkeyptrar sérfræðiaðstoðar, þjónustu eða vöru.
  • Á aðalfundi skal kjósa tvo skoðunarmenn úr hópi félagsmanna

 

13. gr. Breytingar

  • Samþykktum þessum verður ekki breytt nema breytingatillaga hafi verið rædd á aðalfundi og að minnsta kosti 2/3 fundarmanna séu samþykkir tillögunni. Fyrirhuguð breyting skal kynnt í fundarboði og liggja fyrir í fundargögnum.  

 

14. gr. Slit

  • Samtökunum verður aðeins slitið með samþykki eftir umræðu á löglega boðuðum aðalfundi.
  • Geta skal sérstaklega tillögu um félagsslit í fundarboði. Tillagan telst samþykkt, ef 2/3 hlutar fullgildra félagsmanna eru á aðalfundi og 2/3 fundarmanna greiða tillögunni atkvæði sitt. Ef ekki eru nægilega margir félagsmenn á fundinum, skal boða til aukaaðalfundar innan mánaðar. Við boðun þess fundar skal þess sérstaklega getið, að fyrir fundinum muni liggja tillaga um félagsslit. Á aukaaðalfundi þarf tillagan stuðning 4/5 hluta atkvæðisbærra mættra félaga til þess að hljóta samþykki óháð mætingu.
  • Heimilt er að atkvæðagreiðsla fari fram með rafrænum hætti.
  • Verði samtökin lögð niður, skal eignum þeirra ráðstafað til líknarstarfa.


Samþykktir þessar voru lagðar fyrir á stofnfundi Hagsmunasamtaka heimilanna þann 15. janúar 2009 og þar lagt í hendur stjórnar að útfæra frekar og hún samþykkt af stjórn þann 4. febrúar, 2009.




4. febrúar 2009  
Fh.  Hagsmunasamtaka heimilanna


___________________________________________
Ásta Rut Jónasdóttir, formaður


___________________________________________
Þórður B Sigurðsson, varaformaður


____________________________________________
Arney Einarsdóttir, ritari


____________________________________________
Friðrik Ó Friðriksson, gjaldkeri


____________________________________________
Ólafur Garðarsson, meðstjórnandi


___________________________________________
Vésteinn Gauti Hauksson, meðstjórnandi


___________________________________________
Þorvaldur Þorvaldsson, meðstjórnandi

 

Gefðu þína umsögn

Þitt nafn:
Þitt nefang:
Efnislýsing:
Umsögn (nota má HTML tög hér):

Bankareikningur samtakanna

Sparisjóður Suður Þingeyinga - Laugum.

Samtökin óska eftir frjálsum framlögum til styrktar starfinu.

Reikningurinn er: 1110-26-5202
kt. 520209-2120

SAMSTAÐA

Hópmálsókn

Umsagnir