Ræðumenn á Austurvelli

  • Skoða sem PDF skjal
í Búsáhaldabyltingunni var greinilega lögð mikil áhersla á að velja sterka ræðumenn sem höfðu það sem þurfti til að tala til fólkssins. Inn á milli var vissulega fólk sem ekki var vant að koma fram, en náði samt að vera málefnalegt og halda sig við það sem skipti máli. Ef fólk á að sjá ástæðu til að mæta á Austurvöll á laugardögum þá er það mín skoðun að það þurfi að vera frambærilegir ræðumenn sem tali á þessum fundum sem hafi eitthvað að segja sem skipti máli. Ég mætti á marga af fundunum á Austurvelli í búsáhaldabyltingunni og mætti hjá ykkur síðasta laugardag. Einstæð móðir í 50 fermetra íbúð með 3 börn var sú eina sem hafði eitthvað að segja og kynnirinn sem ég náði ekki nafninu á. Við hjónin höfðum hugsað okkur að mæta einhverja laugardaga til að veita stuðning við þetta mikilvæga málefni sem þið eruð að vinna að. En ég er hræddur um að ef það verða miklar endurtekningar frá laugardeginum, þá geti það komið niður á aðsókn.