lán og lygar

  • Skoða sem PDF skjal
góðan dag ég hef verið að lesa greinar hérna inni og langar til að spurja. það fólk sem tók erlend lán hvað keyptuð þið fyrir peninginn? allir þeir sem hafa komið fram í sjónvarpinu og eru að kvarta eiga húsgögn sem undir venjulegum kringum stæðum ekki haft efni á að kaupa sér. hvað fór mikið af þessum peningum í íbúðarhúsnæði til að kaupa það en ekki í nýja búslóðir og nýja bíla, flatskjái og annað þannig. ég tók ekki þátt í þessari geðveiki og ekki á ég það flottasta úr dýrustu búðunum og ekki kvarta ég. mín reynsla er að þeir sem kvarta mest undan að eiga ekki pening eru þeir sem eiga mest af þeim við hin sitjum út í horni og höldum kjafti af því við kunnum að lifa á þessu smá peningum sem við eigum. svo man ég ekki betur en að þessi viðskiptaráðherra okkar sem nú situr og fær öll sín laun hafi á sínum tíma komið fram og sagt "ÞAÐ Á AÐ AFSKRIFA SKULDIR HJÁ FÓLKI Í LANDINU" en hvað er það fyrsta sem hann segir þegar hann er tekinn við sem ráðherra "VIÐ GETUM EKKI AFSKRIFAÐ SKULDIR HEIMILINNA" þá var komið annað hljóð í kallinn. ég er sammála um að láta afskrifa skuldir en athugum fyrst hvað fólkið eyti peningnum í og metum hvern og einn fyrir sig.