Hagsmunasamtök heimilanna mótmæla áhrifum hækkana OR

  • Skoða sem PDF skjal

Frá árinu 2008 hafa gegndarlausar hækkanir gengið yfir heimili landsins, svo sem í matarkostnaði og öðrum heimilisrekstri. Ekki síður kostnaði vegna hækkunar höfuðstóls og greiðslubyrði lána heimilanna þegar verðlagshækkanirnar fara sína leið inn í vísitölu neysluverðs og þaðan viðstöðulaust yfir í hækkun verðtryggðra lána heimilanna. Nú á að enn að bæta um betur við hækkun á orkureikningi heimilanna, að meðaltali 28,5%!

Því hefur verið haldið fram að hækkun OR kunni að stangast á við lög, þar sem verið sé að láta einn hluta notenda, heimilin, greiða það sem öðrum ber; stóriðju, vegna djarfra fjárfestinga til orkuöflunar. Dreifingin sem er í einokun hækkar mest en orkan sem er í samkeppni hækkar minnst. Einnig má benda á að OR hefur árum saman greitt verulegan arð til eigenda sinna og því hefur verið haldið fram að Reykjavíkurborg hafi með háum arðgreiðslunum niðurgreitt annan rekstur sinn. Samkeppnisyfirvöld eru hvött til að skoða þessa þætti vandlega. Skýr krafa er um að spilað verði eftir réttum leikreglum í dag, eftir allt sem á undan er gengið.

Þessi hækkun veldur margháttuðum áhrifum á greiðslubyrði og eignastöðu heimila. Auk beinnar hækkunar orkureiknings, mun hún hækka vísitölu neysluverðs og hækka þannig lánin. Hækkun orkunnar mun leiða til þess að fyrirtækin sem nota orku telja sig þurfa að hækka verð á vörum og þjónustu, sem einnig hækkar vísitölu og lán landsmanna. Svona mikill kostnaðarauki heimila mun leiða til krafna um hærri laun, í þeim samningum sem eru framundan á vinnumarkaði.

Allt þetta, ásamt aðgerðaleysi við að styrkja gengi krónunnar, veldur þeirri keðju- og víxlverkun verðlags og lána sem Hagsmunasamtök heimilanna hafa bent á og er slíkum áhrifum verðhækkana OR og almennt verðhækkunum á nauðsynlegum vörum og þjónustu hér harðlega mótmælt. Rjúfa verður þessi tengsl, þennan vítahring, þannig að allir aðilar hafi eftir það skýra hagsmuni af því að halda verðbólgu á Íslandi í skefjum. Kröfur Hagsmunasamtaka heimilanna um almennar leiðréttingar á forsendubresti allra lánasamninga og um þak á verðbætur frá og með ársbyrjun 2008 þurfa nú að ganga eftir. Þessu verði síðan fylgt eftir með nýju lánakerfi, sem Hagsmunasamtök heimilanna bjóða fram krafta sína til að móta í góðu samstarfi við aðra.

Ef horft er framhjá djörfum fjárfestingum OR undirstrikar skuldastaða og hækkunarþörf Orkuveitu Reykjavíkur þær kröfur og leiðir sem Hagsmunasamtök heimilanna hafa sett fram vegna heimilanna, um að nauðsynlegt sé að fara í almennar leiðréttingar lána, leiðrétta höfuðstól verðtryggðra lána vegna forsendubrest frá 1. janúar 2008. Það þarf að strika yfir þann hluta höfuðstóls lána sem er óraunhæfur og skapa einingum þjóðfélagsins þannig eðlilegan rekstrargrundvöll að nýju. Þá geta greiðendur, jafnt heimili, sem sveitarfélög, atvinnufyrirtæki sem greiða laun, bændur og aðrir einyrkjar farið að standa í skilum, traust að skapast á milli lánveitenda og lántaka og sömuleiðis von og trú í samfélagi okkar.


Reykjavík, 3. sept. 2010

Hagsmunasamtök heimilanna