Það var þá allt í lagi með eignaupptökuna þegar hún stóð fyrir dyrum?
Já Einar, það er merkilegt hvað margir eins og þú rísa nú upp á afturlappirnar yfir þessu máli akkúrat núna. Ekki sögðuð þið neitt þegar það átti að taka ofan af okkur heimilin út af þessum stökkbreyttu lánum. Jafnframt horfið þið alltaf fram hjá markaðsmisnotkun bankanna í þessu öllu saman og hvernig hefur verið brotið á lántökum.
Í fyrsta lagi að þá er það helber lygi að þetta lendi á ríkissjóði. Bankarnir hafa 600 milljarða svigrúm til að afskrifa lán á heimilin ein og sér. Þeir hafa svo 2800 milljarða svigrúm til að afskrifa á fyrirtæki. Þetta gefur þeim svigrúm til að fella gengislánin niður í heild sinni og eiga samt afgang en það er engin þörf á því reyndar. Heildar útlán bankanna voru upp undir 15 þúsund milljarðar. Þó þessi lánasöfn séu ekki í höndum nýju bankanna að þá eru þessar skuldir heimilanna eins og krækiber í helvíti í stóru myndinni.
Ástæðurnar fyrir þessari stífni og hótunum um málsóknir á hendur ríkinu eru þær að AGS er innheimtustofnun fyrst og fremst. Þeir reyna alltaf að hámarka afkomu stóru alþjóðlegu kröfuhafanna. Þeir eru einnig í einhverskonar makró uppeldishlutverki á lántökum um allan heim. "Borgið eða hafið verra af".
Menn höfðu tækifæri til að setja þetta allt saman í einn farveg fyrir alla lánþega fyrir rúmu ári síðan. HH bauð fram sáttahönd en það var hrækt á hana. Lántakar gengistryggðra lána fá skaða sinn aldrei bættann. Fjölskyldur eru tættar og fólk hefur látist. Það er dauðans alvara að fara fram með þeim hætti sem stjórnvöld og fjármálafyrirtæki gerðu. Við vöruðum við þessu og allt hefur ræst sem við spáðum fyrir að gerðist ef ekki væri farið í almennar aðgerðir strax. Nú reyna þeir að etja lántökum saman. Verðtryggðir gegn gengistryggðum. Það á að deila og drottna. Þetta er eitthvert það lágkúrulegasta græðgisstríð á hendur þegnum landins í gjörvallri sögu þess. Fólkið sem gat leyst þessi mál kaus að gera það ekki af því það vildi halda í illa fenginn ofsagróða, útblásið bankakerfi og áframhaldandi svikamillur.
Reyndu nú Einar að hjálpa til við að berja niður verðtrygginguna í stað þess að skemma fyrir öðrum. Láttu ekki etja þér á móti samlöndum þínum sem hafa ekkert sér til saka unnið annað en að kaupa bílskrjóð eða íbúð með tiltekinni gerð lána sem reyndust hluti af svikamillu. Lántaka gengistryggðra lána hafa þjáðst nóg síðustu tvö ár. Þeirra píslarganga hófst í mars 2008. Viltu að þeir sem reyndu að stela af okkur fái skaðabætur af því það tókst ekki?







