Spurningar um málsmeðferð og réttarstöðu lántaka sem kröfuhafa

  • Skoða sem PDF skjal
Gott útspil að svara bara í sömu mynt! Nokkrar spurningar og vangaveltur: 1. Í stað þess að fara á staðinn með tilkynninguna og fá kvittun fyrir móttöku, er þá ekki alveg eins gott að senda hana sem ábyrgðarbréf? Þannig hafa hótunarbréfin verið send til lántakenda sem ekki hafa getað staðið undir tilhæfulausum hækkunum afborgana vegna ólögmætra lánaskilmála. 2. Að því gefnu að lántaki eigi lögmæta endurkröfu á inneign sinni hjá lánveitanda sem myndast hefur vegna oftekinna greiðslna hingað til. Hvaða skilyrði þurfa að vera fyrir hendi svo hægt sé að setja kröfuna í innheimtuferli, t.d. hjá Intrum eða sambærilegum innheimtuaðilum og svo e.t.v. löginnheimtu í kjölfarið? Mér er spurn því ég hef litla reynslu af því nýfengna og óumbeðna hlutverki að vera kröfuhafi og því síður af lögformlegum fullnustuaðgerðum. 3. Nú hafa eflaust margir lántakendur sem ekki hafa getað staðið í fullum skilum með ofreiknaðar kröfur, verið skráðir á vanskilaskrá fyrir tilstilli lánveitenda. Hvaða leiðir eru færar til að fá slíka skráningu leiðrétta sé hún byggð á ólögmætum forsendum? Eru einhver viðurlög við því að skrá fólk ranglega sem vanskilamenn, önnur en almenn ákvæði laga um aðför að mannorði, og er hugsanlega um refsivert athæfi að ræða? Rétt er að benda á að sá sem er skráður á vanskilaskrá getur lent í allskonar óþægindum út af því, t.d. verið hafnað um skuldbreytingu eða önnur úrræði vegna ótengdra skuldbindinga og jafnvel verið hafnað um vinnu hjá fyrirtækum og stofnunum sem gera kröfu um óflekkaðar fjárreiður til umsækjenda sinna. Getur ekki verið að einhverjir sem hafa lent í slíku eigi nú rétt á skaðabótum? Þessar spurningar eru e.t.v. ekki allar tímabærar, en munu að líkindum verða það áður en að endanlegu uppgjöri kemur. Því vildi ég koma þessu á framfæri og vona að sem flest sjónarmið verði höfð til hliðsjónar í umræðunni. Hagsmunasamtökum Heimilanna þakka ég þrotlausa baráttu fyrir réttlátum málstað almennings, sem hefur skilað talsvert meiri árangri en nokkuð sem komið hefur frá gagnslausri verkalýðshreyfingu, þó með undantekningum sé. Fellum glæpagengin á þeirra eigin brögðum! Góðar stundir.