Tilkynning frá Hagsmunasamtökum heimilanna vegna tilmæla talsmanns neytenda
Hagsmunasamtök heimilanna lýsa yfir ánægju með tilmæli talsmanns neytenda til fjármálafyrirtækja “um að lægri föst krónutala verði innheimt til bráðabirgða af lánum sem vafi leikur á hvort falli undir fordæmisáhrif nýlegra gengisdóma Hæstaréttar”. Telja samtökin að í tilmælum talsmanns neytenda séu neytendur látnir njóta vafans um útkomu í fordæmisgefandi dómsmálum sem síðar muni falla dómar í. Sú aðferð sem lögð er til í tilmælunum, einfaldar allan útreikning greiðslna og kemur því um leið í veg fyrir ágreining lántaka og lánveitenda um þessa útreikninga.
Hagsmunasamtök heimilanna hvetja öll fjármálafyrirtæki til að fallast á þessi tilmæli talsmanns neytenda og jafnframt gera lántökum eins auðvelt og hægt er að nýta sér þetta úrræði með því að krefjast ekki skilmálabreytinga með tilheyrandi skjalasöfnun, skjalagerð, umstangi og kostnaði. Útfærslan á að vera einföld og lántaka að kostnaðarlausu.
Þessi aðferð er þegar í boði hjá SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankanum, þó þar sé farið fram á skilmálabreytingu með öllu tilheyrandi. SPRON og FF bjóða lántöku fasteignalána að greiða mánaðarlega kr. 5.500 á hverja milljón af upphaflegum höfuðstóli fasteignaveðláns og kr. 15.000 ef um bílalán er að ræða, þar sem lánstími þeirra er almennt styttri. Telja samtökin að ekki sé óeðlilegt að hin lága fast krónutala sé á bilinu kr. 5.000 - 5.500 fyrir fasteignaveðlán og kr. 13.500 - 15.000 vegna bílalána.
Hagsmunasamtök heimilanna telja að verði fallist á þessi tilmæli talsmanns neytenda og þær fjárhæðir sem hér eru lagðar til, geti skapast ró í þjóðfélaginu og lántakar jafnt sem starfsfólk fjármálafyrirtækja (sem eru svo sem líka lántakar) geti átt ánægjulegt sumar.
Hagsmunasamtök heimilanna
www.heimilin.is







