Tillögur að lögum um aðför og nauðungarsölu

  • Skoða sem PDF skjal
Tillaga að lögum:

Lög um aðför
37 gr. 3. málsgrein. í lögum um aðför. Þrátt fyrir fyrstu málsgrein er óheimilt að taka fjárnám í íbúðarhúsnæði.

Lög um nauðungarsölu
17. gr. 4. málsgrein
Þrátt fyrir 1. málsgrein taka ákvæði þessa þáttar ekki til nauðungarsölu á íbúðarhúsnæði.

Ný grein:
100 gr. Þrátt fyrir 1. mgr. 6 gr. er óheimilt að krefjast nauðungarsölu á íbúðarhúsnæði.

Einnig er óheimilt með öllu að selja íbúðarhúsnæði nauðungarsölu.

Lög þessi gilda til 1. nóvember 2009

Lög þessi öðlast þegar gildi.


***********************************************************************
Unnið hafa:
Ólafur Garðarsson, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
Marinó G. Njálsson, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
Eybjörg Helga Hauksdóttir, lögfræðingur